Heimskringla/Hákonar saga Aðalsteinsfóstra/9
Það haust kom Tryggvi konungur Ólafsson úr vesturvíking. Hafði hann þá áður herjað um Írland og Skotland.
Um vorið fór Hákon konungur norður í land og setti Tryggva konung bróðurson sinn yfir Víkina að verja fyrir ófriði og eignast slíkt af þeim löndum í Danmörku er Hákon konungur hafði hið fyrra sumarið skattgilt.
Svo segir Guttormur sindri:
- Og sóknhattar setti
- svellrjóðr að því fljóði
- Ónars, eiki grónu,
- austr geðbæti hraustan,
- þann er áðr frá Írum
- íðvandr um kom skíðum
- salbrigðandi Sveigðis
- svanvangs liði þangað.