Ákæra saksóknara Alþingis á hendur Geir Hilmari Haarde

Ákæra saksóknara Alþingis á hendur Geir Hilmari Haarde  (2011) 
Saksóknari Alþingis
ÁKÆRA

SAKSÓKNARI ALÞINGIS
gjörir kunnugt:

Að samkvæmt ákvörðun Alþingis, á grundvelli 14. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33 17. júni 1944, sbr. 13. gr. laga um landsdóm, nr. 3/1963, ber að höfða sakamál fyrir landsdómi á hendur fyrrverandi forsætisráðherra,

Geir Hilmari Haarde, kennitala 080451-4749,
til heimilis að Granaskjóli 20, Reykjavik,

fyrip brot framin af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi i embættisfærslu hans sem forsætisráðherra á tímabilinu frá febrúar 2008 og fram í októberbyrjun sama ár, allt eins og hér greinir:

1.

1.1   Fyrir að hafa sýnt af sér alvarlega vanrækslu á starfsskyldum sínum sem forsætisráðherra andspænis stórfelldri hættu sem vofði yfir íslenskum fjármálastofnunum og ríkissjóði, hættu sem honum var eða mátti vera kunnugt um og hefði getað brugðist við með því að beita sér fyrir aðgerðum, löggjöf, útgáfu almennra stjórnvaldsfyrirmæla eða töku stjórnvaldsákvarðana á grundvelli gildandi laga í þvi skyni að afstýra fyrirsjáanlegri hættu fyrir heill ríkisins.
1.2   Fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að hafa frumkvæði að því, annaðhvort með eigin aðgerðum eða tillögum um þær til annarra ráðherra, að innan stjórnkerfisins væri unnin heildstæð og fagleg greining á fjárhagslegri áhættu sem ríkið stóð frammi fyrir vegna hættu á fjármálaáfalli.
1.3   Fyrir að hafa vanrækt að gæta þess að störf og áherslur samráðshóps stjórnvalda um fjármálastöðugleika og viðbúnað, sem stofnað var til á árinu 2006, væru markvissar og skiluðu tilætluðum árangri.
1.4   Fyrir að hafa vanrækt að hafa frumkvæði að virkum aðgerdum af hálfu ríkisvaldsins til að draga úr stærð íslenska bankakerfisins með því til að mynda að stuðla að þvi að bankarnir minnkuðu efnahagsreikning sinn eða einhverjir þeirra flyttu höfuðstöðvar sínar úr landi.
1.5   Fyrir að hafa ekki fylgt þvi eftir og fullvissað sig um að unnið væri með virkum hætti að flutningi Icesave-reikning Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi yfir í dótturfélag og síðan leitað leiða til að stuðla að framgangi þessa með virkri aðkomu ríkisvaldsins.

Framangreind háttsemi þykir varða við b-lið 10. gr., sbr. 11. gr. laga nr. 4/1963, en til vara við 141. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.
2. Fyrir að hafa á framangreindu tímabili látið farast fyrir að framkvæma það sem fyrirskipað er í 17. gr. stjórnarskrár lýðveldisins um skyldu til að halda ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni. Á þessu timabili var lítið fjallað á ráðherrafundum um hinn yfirvofandi háska, ekki var fjallað formlega um hann á ráðherrafundum og ekkert skráð um þau efni á fundunum. Var þó sérstök ástæða til þess, einkum eftir fund hans, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, Árna M. Mathiesen og formanns stjórnar Seðlabankans 7. febrúar 2008, eftir fund hans og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur med bankastjórn Seðlabankans 1. apríl 2008 og í kjölfar yfirlýsingar til sænsku, dönsku og norsku seðlabankanna sem undirrituð var 15. maí 2008. Forsætisráðherra átti ekki frumkvæði að formlegum ráðherrafundi um ástandið né heldur gaf hann ríkisstjórninni sérstaka skýrslu um vanda bankanna eða hugsanleg áhrif hans á íslenska ríkið.

Þykir þetta varða við c-lið 8 gr., sbr.11. gr. laga nr. 4/1963, en til vara við 141. gr. almennra hegningarlaga.

Saksóknari Alþingis gerir þær kröfur fyrir hönd Alþingis að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar að mati landsdóms sbr. 46. gr. laga nr. 3/1963.

Skrifstofu saksóknara Alþingis, Reykjavík 10. maí 2011.
[undirritun]
Sigríður J. Friðjónsdóttir
saksóknari Alþingis