Álfar
- Lífið hún sá í ljóma þeim
- ljósinu af bláum augum tveim.
- Álfar sjá um allan heim,
- enginn er svona fríður.
- Álfaþjóð í brúðardansinn býður.
- Glóir í ljóma hinn gamli bær
- glaðar er sól á vori,
- rjettir arminn út og hlær
- álfur í hverju spori.
- Hver er röddin sæta sú,
- sem að eyrum líður?
- Aldni heimur, ert það þú?
- orðinn svona fríður.
- "Kondu, kondu, kondu nú",
- kallar rómur þýður.
- Álfaþjóð í brúðardansinn býður.