Ástarsaga
Ástarsaga
Höfundur: Jón Thoroddsen yngri
Höfundur: Jón Thoroddsen yngri
- Ég er ung stúlka, sem dansa eftir veginum og syng. Þegar ég mæti honum, hætti ég og hlæ.
- Hvers vegna hætti ég og hlæ?
- Ég dansa eftir veginum og syng. Þegar ég mæti honum, hætti ég og hlæ.
- Hvers vegna hættið þér að syngja?
- Ég veit það ekki.
- Hvers vegna hlæið þér?
- Ég veit það ekki.
- En ég veit það. Þér eigið gimstein, sem þér ætlið að gefa.
- Ég dansa eftir veginum og syng. Áður en ég mæti honum, sný ég við og flýti mér. Hann nær mér og réttir fram hendurnar:
- Gimsteininn.
- Ég skil yður ekki.
- Þér elskið mig.
- Hann tekur utan um mig og kyssir mig.
- Hann tók utan um mig og kyssti mig.
- ---
- Ég er gömul kona, sem geng eftir veginum og græt. Ég mæti honum aldrei oftar.
- Hvers vegna geng ég eftir veginum og græt?
- Ég á gimstein, sem ég get ekki gefið.