Ásukvæði
Ásukvæði er íslenskur vikivaki eða sagnadans. Lög við kvæðið má finna í Íslenskum þjóðlögum Bjarna Þorsteinssonar eða á vefslóð Ísmúss.
- 1. Ása gekk um stræti
- far vel fley
- heyrði hún fögur læti
- við Sikiley,
- fögrum tjöldum slógu þau undir Sámsey.
- 2. Ása gekk í húsið inn
- far vel fley
- sá hún þrælinn bundinn
- við Sikiley,
- fögrum tjöldum slógu þau undir Sámsey.
- 3. „Heil og sæl, Ása mín,
- far vel fley
- nú ertu komin að leysa mig."
- við Sikiley,
- fögrum tjöldum slógu þau undir Sámsey.
- 4. Ég þori ekki að leysa þig,
- far vel fley
- ég veit ekki nema þú svíkir mig.
- við Sikiley,
- fögrum tjöldum slógu þau undir Sámsey.
- 5. Veit það sá hinn ríki,
- far vel fley,
- að hvorugt annan svíki
- við Sikiley,
- fögrum tjöldum slógu þau undir Sámsey.
- 6. Leysti hún bönd af hans hönd
- far vel fley,
- og fjötur hans af fótunum
- við Sikiley,
- fögrum tjöldum slógu þau undir Sámsey.
- 7. Níu hefi ég farið lönd
- far vel fley,
- en tíu hefi ég svikið sprund
- við Sikiley,
- fögrum tjöldum slógu þau undir Sámsey.
- 8. Nú ert þú hin ellefta
- far vel fley,
- þér skal ég aldrei sleppa
- við Sikiley,
- fögrum tjöldum slógu þau undir Sámsey.
- 9. Bíddu mín í litla stund
- far vel fley,
- meðan ég geng í grænan lund
- við Sikiley,
- fögrum tjöldum slógu þau undir Sámsey.
- 10. Hann beið hennar langa stund,
- far vel fley,
- en aldrei kom hún á hans fund
- við Sikiley,
- fögrum tjöldum slógu þau undir Sámsey.
- 11. Sté hún á sinn hvíta hest
- far vel fley,
- og allra kvenna reið hún mest
- við Sikiley,
- fögrum tjöldum slógu þau undir Sámsey.
- 12. Ása gekk í helgan stein
- far vel fley,
- engum gerði hún manni mein
- við Sikiley,
- fögrum tjöldum slógu þau undir Sámsey.