Ísland (Bjarni Thorarensen)
Ísland
Höfundur: Bjarni Thorarensen
Höfundur: Bjarni Thorarensen
- Þú nafnkunna landið sem lífið oss veittir,
- landið sem aldregi skemmdir þín börn,
- hvert þinnar fjærstöðu hingað til neyttir,
- hún sér þér ódugnaðs framvegis vörn.
- Undarlegt sambland af frosti og funa,
- fjöllum og sléttum og hraunum og sjá;
- fagurt og ógurlegt ertu þá brunar
- eldur að fótum þín jöklunum frá!
- Fjör kenni´ oss eldurinn, frostið oss herði,
- fjöll sýni torsóttum gæðum að ná;
- bægi sem kerúb, með sveipanda sverði
- silfurblár Ægir oss kveifarskap frá.
- Þó vellyst í skipsförmum völskunum meður
- vafri að landi, eg skaða ei tel;
- því út fyrir kaupstaði íslenskt í veður
- ef hún sér vogar, þá frýs hún í hel.
- Ef læpuskaps ódyggðir eykjum með flæða
- út yfir haf vilja læðast þér að:
- með geigvænum logbröndum Heklu þær hræða
- hratt skalt þú aptur að snáfa af stað.
- En megnirðu´ ei börn þín frá vondu að vara,
- og vesöld með ódyggðum þróast þeim hjá,
- aftur í legið þitt forna þá fara
- föðurland áttu, - og hníga í sjá.