Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Útilegumannasögur/Útilegumannabæn

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Útilegumannabæn
Skuggavaldi,[1] skjólið þitt
skyggi nú á landið mitt
svo enginn geti á það hitt
af öðrum landsins lýði;
forða oss stríði, forða oss heljar stríði.

Það sagði kvenmaður sem hafði verið einn vetur hjá útilegumönnum að þetta vers hefðu þeir sungið á hverju kvöldi og ekkert hefði hún heyrt þá fara með annað um veturinn.

  1. Aðrir: Skeggs dvaldi. [Hdr.]