Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Náttúrusögur/Skrímsli í Hvítá

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Skrímsli í Hvítá

Eitt kvöld, skömmu áður en amtmaður St[efán] Stephensen dó á Hvítárvöllum, sást undarleg skepna skríða eftir svonefndu Skipholti við Hvítá og heyrðist eins og hringla í því; það lá þar litla stund; vinnumenn amtmanns vildu forvitnast um þetta, en amtmaður bannaði það; svo skreið það í ána aftur. En þetta var álitinn fyrirboði þess að amtmaður væri feigur eins og gömul trú er um það að ef sjó- eða vatnsskrímsli sjáist skríða á land upp sé fyrirboði einhverra tíðinda.

Stundum hefir skrímslið í Hvítá sýnzt í báts líki eða skips.

Sumarið 1851 er ég[1] var á Hvítárvöllum fundust víst einir 7-8 selir höfuðlausir reknir hjá Stafholtsey og Þingnesi við Hvítá.

  1. Þ. e. Jón Borgfirðingur.