Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Viðbætir/Kross fyrir bæjardyrum

12. júlí 1847 og aftur 10. júlí 1862 sagði móðir mín mér[1] frá því að það hefði ævinlega, einkum á fyrri árum, verið siður sinn um leið og hún lokaði bænum að krossa bæjardyrnar og hafa yfir versið að tarna úr Grallaranum:

Blessa þú drottinn bæ og lýð,
blessa oss nú og alla tíð,
blessan þína oss breið þú á,
blessuð verður oss hvíldin þá.

Þetta gerði hún til þess að ekkert illt skyldi komast inn í bæinn.

  1. Þ. e. sr. Jón Norðmann.