Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Viðburðasögur/Ein lítil historía

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Ein lítil historía

Einu sinni var maður íslenzkur að kyni er hraktist á flan[d]enskri duggu til Grænlands. Honum lukkaðist að komast landveg á fæti yfir fjöll og jökla og öll öræfi og fyrir alla hafsbotna vestan allt úr Grænlandsbyggð og austur til Gandvíkur og svo til Noregs. Hann leiddi með sér eina geit og fæddist á mjólk hennar. Hitti hann oftast dali og mjó sund á milli jökla svo geit hans gat haldizt við gras eða skóg.