Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Viðburðasögur/Kaupangur

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Kaupangur

Svo heitir nú bær einn í Eyjafirði, en sagt er að hann hafi áður heitið Bíldsá og hafi hann verið nefndur Kaupangur af því að hann hafi verið seldur við gjafverði í hungursári. Þessi saga sem á svo vel við bæjarnafnið og sem þess vegna kynni í sjálfu sér að virðast grunsöm stendur þó alls ekki ein á blaði, því enn eru til margar fleiri sögur um sama óár þar í byggðarlaginu.