Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Viðburðasögur/Nöldraðu sæll á skjá

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
„Nöldraðu sæll á skjá“

Drengur einn kom í harðindum til bónda (á glugga um nótt?) og bað hann að gefa sér matarbita. Bóndi tók því lítið, en sagðist skyldi gefa honum Kamb í Króksfirði ef hláka yrði komin um fótaferðartíma. Um nóttina blotaði og þá var drengur að raula fyrir munni sér:

Nöldraðu sæll á skjá, (al.: Stanglaðu sæll á skjá)
ég á Kamb í Króksfirði (al.: Kamb á ég í Króksfirði)
og kotin öll þar hjá.[1]

Er svo sagt að drengur hafi fengið Kamb í Króksfirði og dóttur bónda með.

  1. En ég Jón Árnason hefi heyrt vísuna svo:
    Komdu sæll minn, minn,
    maldrandi á skjá;
    ég á Kamb (Kurf) í Króksfirði
    og kotin öll þar hjá. [Hdr.]