Útlegðin
eftir Stephan G. Stephansson
- Ég á orðið einhvern veginn
- ekkert föðurland,
- þó að fastar hafi um hjartað
- hnýst það ræktarband,
- minn sem tengdan huga hefur
- hauðri, mig sem ól,
- þar sem æskubrautir birti
- björtust vonarsól.
- Fóstran gekk mér aldrei alveg
- í þess móðurstað.
- Það var eitthvað, á sem skorti —
- ekki veit ég hvað —
- og því hef ég arfi hennar
- aldrei vera sagst.
- Þó hefur einhver óviðkynning
- okkar milli lagst.
- Eins eru ei dalir, firðir, fjöllin
- fósturjarðar góð,
- byggi héruð, hlíðar, strendur
- hálfókunnug þjóð.
- Muntu eins feginn faðma að þér
- frænda og vina lið,
- getirðu andans ættarsvip þinn
- ekki kannast við?
- Enn um vornótt velli græna
- vermir sólskin ljóst,
- enn þá lækir hverfast kringum
- hvelfdra hlíða brjóst,
- báran kveður eins og áður
- út við fjörusand —
- en ég á orðið einhvern veginn
- ekkert föðurland.
- Andvökur, úrval Sigurðar Nordals, 2. útgáfa 1980.