Þorraþræll
Þorraþræll
Höfundur: Kristján Jónsson fjallaskáld
Höfundur: Kristján Jónsson fjallaskáld
- Nú er frost á Fróni,
- frýs í æðum blóð,
- kveður kuldaljóð
- Kári í jötunmóð.
- Yfir laxalóni
- liggur klakaþil,
- hlær við hríðarbyl
- hamragil.
- Mararbára blá
- brotnar þung og há
- unnarsteinum á,
- yggld og grett á brá.
- Yfir aflatjóni
- æðrast skipstjórinn,
- harmar hlutinn sinn
- hásetinn.
- Horfir á heyjaforðann
- hryggur búandinn:
- ,,Minnkar stabbinn minn,
- magnast harðindin. -
- Nú er hann enn á norðan,
- næðir kuldaél,
- yfir móa og mel
- myrkt sem hel.
- Bóndans býli á
- björtum þeytir snjá,
- hjúin döpur hjá
- honum sitja þá.
- Hvítleit hringaskorðan
- huggar manninn trautt;
- Brátt er búrið autt,
- búið snautt.
- Þögull Þorri heyrir
- þetta harmakvein
- gefur grið ei nein,
- glíkur hörðum stein,
- engri skepnu eirir,
- alla fjær og nær
- kuldaklónum slær
- og kalt við hlær:
- ,,Bóndi minn, þitt bú
- betur stunda þú.
- Hugarhrelling sú,
- er hart þér þjakar nú,
- þá mun hverfa, en fleiri
- höpp þér falla í skaut.
- Senn er sigruð þraut,
- ég svíf á braut.