C
Búnaðarbálkur
Höfundur: Eggert Ólafsson
D
E
D.
Illr bæar-bragr; honum fylgja reymleikar og þvílíkt, en fjarlægð heilagra eingla.
16.
Þá nóttin dymmir, draugar vakna,
djörfúng taka þeir mönnum frá;
heilagra eingla eingir sakna,
eru þeir hvörgi þar í hjá;
góðir andar víst eru til,
enn ei við þvílíkt hjónaspil.
17.
Gól heyra menn og horfa' á myndir
hræðiligar með eldingum;
allteins sjá þeir sem eru blindir
illar vofur í myrkrunum;
forynjur hestum færa slig,
fær, naut og hirðar slasa sig.