7
chior, og tvær dætur, Marínu og Guðrúnu.[1] Þessi Pjetur var veginn af sínum sjálfs tveimur þjenurum, sem þar til voru keyptir af nokkrum hjerlandsmönnum, fyrir einhvers haturs sakir, nær hann gekk úr baði um veturinn á föstu. Þessir hans 2 synir drógu til Hamborgar og tóku mestallan ríkdóm með sjer, einkum kvennlegt skart upp á 12 jómfrúr, en þær systur báðar, Marín og Guðrún, urðu hjer eftir, og þessi Marín var mín langamma, sú eð var móðir Hildar, Hildur var móðir Olafar, sú eð var móðir min, en Guðrún var langamma Marínar Halldórsdóttur, sem nú er í Súðavík. En af þessum áðurnefndu Pjeturssonum er sögð stór ætt til Hamborgar sje afkomin.
Mínir sálugu foreldrar áttu 14 börn sín í milli í heiðarlegum hjúskap, og af þeim komust ekki utan 3 til aldurs, sem var Halldór, Þóra og eg. Á milli mín og Halldórs var 14 ára munur, en 17 milli Þóru og mín, og var eg næstur seinasta barni minnar móður fæddur, og var ei sóknarprestur í þann tíð nálægt, nje innan sóknar, en sakir fjúks og stórveðurs varð og ei heldur sóktur i Ögurþinghá. Minir foreldrar útbjuggu 2 menn og eina kvennsnift með mig til Eyrar i Skutulsfjörð á fund Síra Sigmundar
Vatnsfjarðar-Kristín | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Solveig m. Sigmundur | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Jón Sigmundsson lögmaður | Ástríður m. Pjetur Schytt hirðstjóri | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
[2] Jón | Helga | Marín | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Síra Arngrímur | Guðbrandur biskup | Hildur | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Síra Þorkell | Hildur | Steinunn | Kristín | Ólöf Þorsteinsdóttir | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Mag. Jón Vídalín biskup í Skálholti | Páll Vídalín lögmaður N og S. | Þorlákur Skúlasson biskup | Síra Jón Arason í Vatnsfirði | Jón Ólafsson Austindíafari | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Oddur hinn digri | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Guðrún | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||