Blaðsíða:Æfisaga Jóns Ólafssonar.djvu/4

Þessi síða hefur verið prófarkalesin
IV

og varð svo ekki meira úr því. — Merkilegt er það að Espólín ekki virðist hafa þekkt söguna, að minnsta kosti hefur hann ekki i árbókum sínum tilfært neitt um víg Pjeturs hirðstjóra, og eru þó ekki mörg hirðstjóravígin á Íslandi, ekki heldur um bardagann milli Englendinga og Frakka fyrir Látrabjargi, nje sendiförina til Bessastaða og það sem í 3. parti sögunnar er sagt um Tyrki þar, en alt þetta hefði hann líklega notað ef hann hefði þekkt bókina. Á 19. öldinni fengust nokkrir við ritið. Í Konunglega bókasafninu í Khöfn er til dönsk þýðing (hdr. Nj kgl. Saml. 2077 a, sjá skrá Dr. Kålunds, bls. 289—90), en hún endur í 16. kap. fyrsta partsins, og er full af misskilningi og vitleysum; hún hefur því aldrei verið gefin út. Heyrt hef jeg sagt að Páll heitinn Briem amtmaður hafi haft í hyggju að gefa söguna út, en orðið að hætta við það. Þá gerði Valdimar Ásmundsson ritstjóri útdrátt úr sögunni, og birti í blaði sínu Fjallkonunni 4. árg. 1887. Ólafur Davíðs- son birti í Sunnanfara V, 37 — 38 frásögn Jóns um viðræðu sína og Jóns Halldórssonar við Kristján 4. (hjer bls. 49—50) og um Íslendinga í Höfn (hjer bls. 33—34). Dr. Jón Þor- kelsson landsskjalavörður gaf út kaflana um Tyrkjaránið (III. partur, k. 2—6) í »Tyrkjaránið á Íslandi 1627. Sögu- félag gaf út. Rvík 1906 — 09«, bls. 200—316. Árið 1905 kom út fyrsti partur bókarinnar í danskri þýðingu eftir mig: Jon Olafssons Oplevelser som Bøsseskytte under Chri- stian IV. Nedskrevne af ham selv. I Oversættelse ved S. Blöndal. Udgivne af Julius Clausen og P. Fr. Rist. Gyl- dendalske Boghandel, Nordisk Forlag (København 1905), V + 244 bls. 80, og er sú þýðing 1. bindi í ritsafninu »Memoirer og Breve« sem þeir Julius Clausen bókavörður og P. Fr. Rist ofursti gefa út. Athugasemdirnar voru lang- flestar eftir þá útgefendurna, jeg ritaði líka stuttan for- mála og ýmsar athugasemdir um það er Ísland snerti. Árið 1907 kom svo siðari hlutinn: Jon Olafssons Oplevelser som Ostindiefarer under Christian IV. Nedskrevne af ham selv. I Oversættelse ved S. Blöndal. Udgivne af Julius Clausen og P. Fr. Rist. Gyldendalske Boghandel, Nordisk