Blaðsíða:Íslensk Söngbók.djvu/17

Þessi síða hefur ekki verið prófarkalesin

3.

Þú fósturjörðin fríð og kær, Sem feðra hlúar beinum, Og lífið ungu frjóvi fær Hjá fornum bauta-steinum, Ó, blessuð vertu fagra fold, Og fjöldinn þinna barna, Á meðan gróa grös í mold Og glóir nokkur stjarna.

Jón Thóroddsen.

3. ísland.

Lag : God save the king.

1. Eldgamla ísafold, Ástkæra fósturmold, Fjallkon-an fríð, Mögum þín muntu kær, Meðan lönd girðir sær Og gumar girnast mær, Gljár sól á hlíð.

2. Hafnar úr gufu hér Heim allir girnumst vér Þig þekka' að sjá; Glepur oss glaumurinn, Ginnir oss soll-urinn, Hlær að oss heimskinginn Hafnar slóð á.

3. Leiðist oss fjalllaust frón, Fær oss oft heilsutjón Þokuloft léð ; Svipljótt land sýnist mér Sífelt að vera hér, Sem neflaus ásýnd er, Augnalaus með.

4. Öðruvísi' er að sjá Á þér hvítfaldinn há Heiðhim-in við ; Eða þær kristalsár, Á Jiverjar sólin gljár, Og heiðar himinblár, Hájökla rið.

5. Eídgamla ísafold, Ástkæra fósturmold, Fjallkon- an fríð, Ágætust auðnan þér, Upp lyfti, biðjum vér, Meðan að uppi er, Öll heimsins tíð.

Bjarni Thórarensen.

4. Minni íslands.

Lag eftir Bellmann. (J. H. 8.)

ísland, þig elskum vér Alla vora daga; Bygð vor við brjóst þitt er, Brauð og líf og saga, Blikeldar braga,