Blaðsíða:Íslensk Söngbók.djvu/32

Þessi síða hefur ekki verið prófarkalesin

18

Þar eigum vér heima, þar finnum vér fró, Þótt fátæk-ir séum er gleði vor nóg.

2. Þú blessar oss alla, þú elskar oss hlýtt Og ástljúf-um höndum oss vefur, Við brjóst þín oss elur, við blítt og við strítt, Og býður þau gæði, sem hefur. Ó, hvet oss til frama, í hættum oss hlíf, Vér helgum þér allir vorn starfa og líf.

Páll Jónsson.

22. Minni íslands.

Lag: Velkomnir gestir. (Crusell, Hh.)

1. Fannhvíta móðir! Fjöllin þín standa, Lauga sig altaf í Ijómandi sæ! Kaldur er jökull, Kennir ei varma :,: Suðrið þó veki vorlegan blæ. :,:

2. Fest ertu rótum Föstum og styrkum, Hetjanna fold, í hyldjúpum beð ! Stattu í hríðum, Stormum og byljum! :,: Almættið hefir orkuna léð! :,:

3. Fyr glóðu brynjur Bjartar við sólu, Skildir og hjálmar, skínandi sverð. Það voru hetjur, Héldu að þingi, : , : Þeystu í dóm, á Þingvallaf erð ! : , :

4. Öxará glumdi, Gjáin tók undir, Heilsuðu riðnum hölum á þing. Skínandi sat á Skjaldbreiðar tindi :,:Vættur, og fána veifði í hring :,:

5. Þar var á frelsið Farsæla dregið, Sveif yfir hetj-um himins í sal. Farsæla móðir, Fögur og aldin ! : , : Þá. varstu fjörug, fagurt í dal ! :,:

6. Alþingi áður Öllu réð halda Saman í skorðum, frelsinu fáð ! Sólin til viðar Seig þó að kvöldi, :,: Myrkvaðist bæði lögur og láð. :,: