Blaðsíða:Harriet Beecher Stowe - Tómas frændi.djvu/97

Þessi síða hefur verið staðfest

88

þessu frjálsir menn og frjálsar konur. Eptir þetta borga eg yður kaup fyrir vinnu yðar, eptir því sem oss semur um. Kosturinn við þetta er sá, að það verður ekki hægt áð taka yður og selja, þó svo færi að mín misti við eða eg lenti í skulda kröggum. Eg ætla mér að halda búskapnum áfram í sama horft, sem að undanförnu hefur verið, og kenna yður jafnframt það, sem þér munuð ef til vill þurfa nokkurn tíma til að læra — hvernig þér eigið að fara með réttindi þau, er eg hef nú gefið yður, sem frjálsir menn og frjálsar konur. Eg ætlast til þess af yður öllum, áð þér verðið iðin og námfús, og eg vona til guðs að eg verði trúr í starfi mínu og fús að leiðbeina yður. Og nú, vinir mínir; litið upp og þakkið guði fyrir blessun frelsisins.

Þér munið öll eptir hinum góða og dygga Tómasi frænda“. — Georg lýsti þessu næst með fáum orðum andáti hins gamla manns, bar þeim öllum hina hinnstu kærleiks kveðju hans og mælti að endingu: „Það var á leiði hans, vinir mínir, að eg hét því frammi fyrir augliti drottins, að eg skyldi aldrei framar þræl eiga, og að enginn maður skyldi fyrir mína sök þurfa að eiga það á hættu að verða skilinn frá heimili og vinum og deyja eimmana og yfirgefinn á fjarlægri plantekru, eins og hann gjörði. Þegar þér því fagnið yfir frelsi yðar, þá minnist þess jafnan, að þér eigið það að þakka þessum góða, gamla manni; og látið konu hans og börn njóta þess. Hugsið um frelsi yðar í hvert sinn er þér lítið á kofann hans Tómasar frænda, og látið það vera yður upphvatning og áminning um, að feta í fótspor hans og vera eins ráðvönd og trú og kristin, eins og hann var.“