Brennu-Njáls saga
154. kafli

Þeir Kári og Kolbeinn svarti létu út hálfum mánuði síðar af Eyrum en þeir Flosi úr Hornafirði. Gaf þeim vel byri og voru skamma stund úti. Tóku þeir Friðarey. Hún er á milli Hjaltlands og Orkneyja. Tók við Kára sá maður er Dagviður hvíti hét. Hann sagði Kára allt um ferðir þeirra Flosa slíkt sem hann hafði vís orðið. Hann var hinn mesti vin Kára og var Kári með honum um veturinn. Höfðu þeir þá fréttir vestan um veturinn úr Hrosseyju allar þær er þar gerðust.

Sigurður jarl bauð til sín að jólum Gilla jarli mági sínum úr Suðureyjum. Hann átti Svanlaugu systur Sigurðar jarls. Þá kom og til Sigurðar jarls konungur sá er Sigtryggur hét. Hann var af Írlandi. Hann var sonur Ólafs kvarans en móðir hans hét Kormlöð. Hún var allra kvenna fegurst og best að sér orðin um það allt er henni var ósjálfrátt en það er mál manna að henni hafi allt verið illa gefið það er henni var sjálfrátt.

Brjánn hét konungur sá er hana hafði átta og voru þau þá skilin því að hann var allra konunga best að sér. Hann sat í Kunnjáttaborg. Bróðir hans var Úlfur hræða, hinn mesti kappi og hermaður. Fóstri Brjáns konungs hét Kerþjálfaður. Hann var son Kylfis konungs þess er margar orustur átti við Brján konung og stökk úr landi fyrir honum og settist í stein. En þá er Brjánn konungur gekk suður þá fann hann Kylfi konung og sættust þeir þá. Tók þá Brjánn konungur við syni hans Kerþjálfaði og unni meira en sínum sonum. Hann var þá roskinn er þetta er tíðinda og var allra manna fræknastur. Dungaður hét son Brjáns konungs en annar Margaður, þriðji Taðkur, þann köllum vér Tann. Hann var þeirra yngstur en hinir eldri synir Brjáns konungs voru frumvaxta og manna vasklegastir. Ekki var Kormlöð móðir barna Brjáns konungs. En svo var hún orðin grimm Brjáni konungi eftir skilnað þeirra að hún vildi hann gjarna feigan. Brjánn konungur gaf upp þrisvar útlögum sínum hinar sömu sakar. En ef þeir misgerðu oftar þá lét hann dæma þá að lögum. Og má af slíku marka hvílíkur konungur hann hefir verið.

Kormlöð eggjaði mjög Sigtrygg son sinn að drepa Brján konung. Sendi hún hann af því til Sigurðar jarls að biðja hann liðs. Kom Sigtryggur konungur fyrir jól til Orkneyja. Þar kom þá og Gilli jarl sem fyrr var ritað.

Svo var mönnum skipað að Sigtryggur konungur sat í miðju hásæti en til sinnar handar konungi sat hvor jarlanna. Sátu menn þeirra Sigtryggs konungs og Gilla jarls innar frá en utar frá Sigurði jarli sat Flosi og Þorsteinn Síðu-Hallsson og var skipuð öll höllin.

Sigtryggur konungur og Gilli jarl vildu heyra tíðindi þau er gerst höfðu um brennuna og svo síðan er hún varð. Þá var fenginn til Gunnar Lambason að segja söguna og var settur undir hann stóll.