Brennu-Njáls saga
25. kafli

Valgarður hét maður. Hann bjó að Hofi við Rangá. Hann var sonur Jörundar goða, Hrafnssonar hins heimska, Valgarðssonar, Ævarssonar, Vémundarsonar orðlokars, Þórólfssonar voganefs, Þrándarsonar hins gamla, Haraldssonar hilditannar, Hrærekssonar slöngvanbauga. Móðir Haralds hilditannar var Auður dóttir Ívars víðfaðma Hálfdanarsonar hins snjalla. Bróðir Valgarðs hins grá var Úlfur aurgoði er Oddaverjar eru frá komnir. Úlfur aurgoði var faðir Svarts, föður Löðmundar, föður Sigfúss, föður Sæmundar hins fróða, en frá Valgarði er kominn Kolbeinn ungi.

Þeir bræður, Úlfur aurgoði og Valgarður hinn grái, fóru að biðja Unnar og giftist hún Valgarði án ráði allra frænda sinna en það þótti Gunnari illa og Njáli og mörgum öðrum því að Valgarður var maður grályndur og óvinsæll.

Þau gátu sér son er Mörður hét og er sá lengi við þessa sögu. Þá er hann var fullkominn að aldri var hann illa til frænda sinna og einna verst til Gunnars. Hann var slægur í skapferðum og illgjarn í ráðum.

Nú skal nefna sonu Njáls. Skarphéðinn hét hinn elsti. Hann var mikill maður vexti og styrkur, vígur vel, syndur sem selur, manna fóthvatastur, skjótráður og öruggur, gagnorður og skjótorður en þó löngum vel stilltur. Hann var jarpur á hár og sveipur í hárinu, eygður vel, fölleitur og skarpleitur, liður á nefi og lá hátt tanngarðurinn, munnljótur nokkuð og þó manna hermannlegastur.

Grímur hét annar sonur Njáls. Hann var svartur á hár og þó fríðari sýnum en Skarphéðinn og var bæði mikill og sterkur.

Helgi hét hinn þriðji sonur Njáls. Hann var fríður maður sýnum og hærður vel. Hann var sterkur maður og vel vígur. Hann var vitur maður og stilltur vel. Allir voru þeir ókvongaðir synir Njáls.

Höskuldur hét hinn fjórði sonur Njáls. Hann var laungetinn. Móðir hans hét Hróðný og var Höskuldsdóttir, systir Ingjalds frá Keldum.

Njáll spurði Skarphéðinn ef hann vildi kvongast. Hann bað föður sinn ráða. Bað Njáll þá til handa honum Þórhildar dóttur Hrafns úr Þórólfsfelli og átti hann því þar annað bú síðan. Skarphéðinn fékk Þórhildar og var þó vistum með föður sínum. Til handa Grími bað hann Ástríðar af Djúpárbakka. Hún var ekkja og auðig mjög. Grímur fékk hennar og var þó með Njáli.