Fjalldrapi
Fjalldrapi
Höfundur: Hannes Hafstein
Höfundur: Hannes Hafstein
- Hann vex upp í hlíðum, við hóla og börð,
- við hreinsvala blæinn, í ófrjórri jörð.
- Þótt ekki sé borin þar mykja í moldu,
- þá megnar hann sjálfur að breiðast um foldu.
- Hann vex upp í kjarri og hreykist ei hátt,
- en heldur við jörðina, blómskreytir fátt,
- en stendur því fastar og lifir því lengur,
- og lætur ei buga sig, hvernig sem gengur.
- Þótt óhjúkrað standi úr ísum og snjó
- hans ólaufgað bar, þá lifir hann þó.
- Er hæfur í vendi, að hreinsa með bæi,
- því hann er mjór, og í stinnara lagi.
- Er hæfur í vendi að húðstrýkja þá,
- sem heilnæma tyftingu þarfnast að fá.
- Þótt fannirnar kyngist hann álnarhátt yfir,
- samt ímynd hins beiska sannleika lifir.