Glymur við í hamrahöll

Glymur við í hamrahöll
höfundur Benedikt Gröndal

Textinn er hér fenginn frá vef héraðsskjalasafns Skagfirðinga og er þar fenginn úr Vísnasafni Sigurðar J. Gíslasonar sem varðveitt er í safninu.

Glymur við í hamrahöll.
Hleypum upp á Möðruvöll.
Þar er hvorki þras né vín.
Þar er rektor Hjaltalín.
Þar er arg og þar er garg.
Þar er Tryggvi og bankabygg.
Anna gamla fer í fjós.
Fuglinn grætur, syngur rós.