Grýlukvæði séra Guðmundar Erlendssonar
Grýlukvæði
Höfundur: Guðmundur Erlendsson
Höfundur: Guðmundur Erlendsson
- Hér er komin Grýla
- og gægist um hól.
- Hún mun vilja hvíla
- sig hér um öll jól.
- Hún mun vilja hvíla sig,
- því hér eru börn;
- hún er grá um hálsinn
- og hlakkar eins og örn.
- Hún er grá um hálsinn
- og hleypur ofan í fjós,
- hún vill ekki horfa í
- það hátíða ljós.
- Hún vill ekki heyra
- þann hátíðasöng;
- kvartar hún um ketleysi
- og kveðst vera svöng.