Hávamál
I. Gestaþáttur
breyta- 1. Gáttir allar
- áður gangi fram
- um skoðast skyli,
- um skyggnast skyli,
- því að óvíst er að vita
- hvar óvinir
- sitja á fleti fyrir.
- 2. Gefendur heilir!
- Gestur er inn kominn!
- hvar skal sitja sjá?
- Mjög er bráður
- sá er á bröndum skal
- síns um freista frama.
- 3. Elds er þörf
- þeim er inn er kominn
- og á kné kalinn.
- Matar og voða
- er manni þörf,
- þeim er hefir um fjall farið.
- 4. Vatns er þörf
- þeim er til verðar kemur,
- þerru og þjóðlaðar,
- góðs um æðis
- ef sér geta mætti
- orðs og endurþögu.
- 5. Vits er þörf
- þeim er víða ratar.
- Dælt er heima hvað.
- Að augabragði verður
- sá er ekki kann
- og með snotrum situr.
- 6. Að hyggjandi sinni
- skyli-t maður hræsinn vera,
- heldur gætinn að geði.
- Þá er horskur og þögull
- kemur heimisgarða til,
- sjaldan verður víti vörum.
- Því að óbrigðra vin
- fær maður aldregi
- en mannvit mikið.
- 7. Inn vari gestur
- er til verðar kemur
- þunnu hljóði þegir,
- eyrum hlýðir,
- en augum skoðar.
- Svo nýsist fróðra hver fyrir.
- 8. Hinn er sæll
- er sér um getur
- lof og líknstafi.
- Ódælla er við það
- er maður eiga skal
- annars brjóstum í.
- 9. Sá er sæll
- er sjálfur um á
- lof og vit meðan lifir.
- Því að ill ráð
- hefir maður oft þegið
- annars brjóstum úr.
- 10. Byrði betri
- ber-at maður brautu að
- en sé mannvit mikið.
- Auði betra
- þykir það í ókunnum stað.
- Slíkt er volaðs vera.
- 11. Byrði betri
- ber-at maður brautu að
- en sé mannvit mikið.
- Vegnest verra
- vegur-a hann velli að
- en sé ofdrykkja öls.
- 12. Er-a svo gott
- sem gott kveða
- öl alda sonum,
- því að færra veit
- er fleira drekkur
- síns til geðs gumi.
- 13. Óminnishegri heitir
- sá er yfir öldrum þrumir.
- Hann stelur geði guma.
- Þess fugls fjöðrum
- eg fjötraður var'g
- í garði Gunnlaðar.
- 14. Ölur eg varð,
- varð ofurölvi
- að ins fróða Fjalars.
- Því er öldur best
- að aftur um heimtir
- hver sitt geð gumi.
- 15. Þagalt og hugalt
- skyldi þjóðans barn
- og vígdjarft vera.
- Glaður og reifur
- skyli gumna hver
- uns sinn bíður bana.
- 16. Ósnjallur maður
- hyggst munu ey lifa,
- ef hann við víg varast.
- En elli gefur
- honum engi frið,
- þótt honum geirar gefi.
- 17. Kópir afglapi
- er til kynnis kemur,
- þylst hann um eða þrumir
- Allt er senn,
- ef hann sylg um getur,
- uppi er þá geð guma.
- 18. Sá einn veit
- er víða ratar
- og hefir fjöld um farið
- hverju geði
- stýrir gumna hver,
- sá er vitandi er vits.
- 19. Haldi-t maður á keri,
- drekki þó af hófi mjöð,
- mæli þarft eða þegi.
- Ókynnist þess
- váar þig engi maður
- að þú gangir snemma að sofa.
- 20. Gráðugur halur,
- nema geðs viti,
- etur sér aldurtrega.
- Oft fær hlægis
- er með horskum kemur
- manni heimskum magi.
- 21. Hjarðir það vitu
- nær þær heim skulu
- og ganga þá af grasi.
- En ósvinnur maður
- kann æva-gi
- síns um mál maga.
- 22. Vesall maður
- og illa skapi
- hlær að hvívetna.
- Hitt-ki hann veit
- er hann vita þyrfti
- að hann er-a vamma vanur.
- 23. Ósvinnur maður
- vakir um allar nætur
- og hyggur að hvívetna.
- Þá er móður
- er að morgni kemur.
- Allt er víl sem var.
- 24. Ósnotur maður
- hyggur sér alla vera
- viðhlæjendur vini.
- Hitt-ki hann finnur,
- þótt þeir um hann fár lesi,
- ef hann með snotrum situr.
- 25. Ósnotur maður
- hyggur sér alla vera
- viðhlæjendur vini.
- Þá það finnur
- er að þingi kemur
- að hann á formælendur fáa.
- 26. Ósnotur maður
- þykist allt vita,
- ef hann á sér í vá veru.
- Hitt-ki hann veit
- hvað hann skal við kveða,
- ef hans freista firar.
- 27. Ósnotur maður
- er með aldir kemur,
- það er best að hann þegi.
- Engi það veit
- að hann ekki kann,
- nema hann mæli til margt.
- Veit-a maður
- hinn er vætki veit,
- þótt hann mæli til margt.
- 28. Fróður sá þykist
- er fregna kann
- og segja ið sama.
- Eyvitu leyna
- megu ýta synir
- því er gengur um guma.
- 29. Ærna mælir
- sá er æva þegir
- staðlausu stafi.
- Hraðmælt tunga,
- nema haldendur eigi,
- oft sér ógott um gelur.
- 30. Að augabragði
- skal-a maður annan hafa,
- þótt til kynnis komi.
- Margur þá fróður þykist
- ef hann freginn er-at
- og nái hann þurrfjallur þruma.
- 31. Fróður þykist
- sá er flótta tekur
- gestur að gest hæðinn.
- Veit-a gjörla
- sá er um verði glissir,
- þótt hann með grömum glami.
- 32. Gumnar margir
- erust gagnhollir
- en að virði vrekast.
- Aldar róg
- það mun æ vera:
- Órir gestur við gest.
- 33. Árlega verðar
- skyli maður oft fá,
- nema til kynnis komi.
- Situr og snópir,
- lætur sem sólginn sé
- og kann fregna að fáu.
- 34. Afhvarf mikið
- er til ills vinar,
- þótt á brautu búi.
- En til góðs vinar
- liggja gagnvegir,
- þótt hann sé firr farinn.
- 35. Ganga skal,
- skal-a gestur vera
- ey í einum stað.
- Ljúfur verður leiður,
- ef lengi situr
- annars fletjum á.
- 36. Bú er betra,
- þótt lítið sé.
- Halur er heima hver.
- Þótt tvær geitur eigi
- og taugreftan sal,
- það er þó betra en bæn.
- 37. Bú er betra,
- þótt lítið sé.
- Halur er heima hver.
- Blóðugt er hjarta
- þeim er biðja skal
- sér í mál hvert matar.
- 38. Vopnum sínum
- skal-a maður velli á
- feti ganga framar,
- því að óvíst er að vita
- nær verður á vegum úti
- geirs um þörf guma.
- 39. Fann'g-a eg mildan mann
- eða svo matargóðan
- að ei væri þiggja þegið,
- eða síns fjár
- svo gjafa fúsan
- að leið sé laun, ef þægi.
- 40. Fjár síns
- er fengið hefir
- skyli-t maður þörf þola.
- Oft sparir leiðum
- það er hefir ljúfum hugað.
- Margt gengur verr en varir.
- 41. Vopnum og voðum
- skulu vinir gleðjast:
- það er á sjálfum sýnst.
- Viðurgefendur og endurgefendur
- erust lengst vinir,
- ef það bíður að verða vel.
- 42. Vin sínum
- skal maður vinur vera
- og gjalda gjöf við gjöf.
- Hlátur við hlátri
- skyli höldar taka
- en lausung við lygi.
- 43. Vin sínum
- skal maður vinur vera,
- þeim og þess vin.
- En óvinar síns
- skyli engi maður
- vinar vinur vera.
- 44. Veistu ef þú vin átt,
- þann er þú vel trúir,
- og vilt þú af honum gott geta,
- geði skaltu við þann blanda
- og gjöfum skipta,
- fara að finna oft.
- 45. Ef þú átt annan,
- þann er þú illa trúir,
- Viltu af honum þó gott geta,
- fagurt skaltu við þann mæla
- en flátt hyggja
- og gjalda lausung við lygi.
- 46. Það er enn um þann
- er þú illa trúir
- og þér er grunur að hans geði:
- hlæja skaltu við þeim
- og um hug mæla.
- Glík skulu gjöld gjöfum.
- 47. Ungur var eg forðum,
- fór eg einn saman:
- þá varð eg villur vega.
- Auðigur þóttumst
- er eg annan fann:
- Maður er manns gaman.
- 48. Mildir, fræknir
- menn best lifa,
- sjaldan sút ala.
- En ósnjallur maður
- uggir hotvetna:
- Sýtir æ glöggur við gjöfum.
- 49. Voðir mínar
- gaf eg velli að
- tveim trémönnum.
- Rekkar það þóttust
- er þeir rift höfðu:
- Neis er nökkviðr halur.
- 50. Hrörnar þöll
- sú er stendur þorpi á.
- Hlýr-at henni börkur né barr.
- Svo er maður
- sá er manngi ann.
- Hvað skal hann lengi lifa?
- 51. Eldi heitari
- brennur með illum vinum
- friður fimm daga,
- en þá slokknar
- er inn sétti kemur
- og versnar allur vinskapur.
- 52. Mikið eitt
- skal-a manni gefa:
- Oft kaupir sér í litlu lof.
- Með hálfum hleif
- og með höllu keri
- fékk eg mér félaga.
- 53. Lítilla sanda
- lítilla sæva
- lítil eru geð guma.
- Því að allir menn
- urðu-t jafnspakir:
- Hálf er öld hvar.
- 54. Meðalsnotur
- skyli manna hver:
- æva til snotur sé.
- Þeim er fyrða
- fegurst að lifa
- er vel margt vitu.
- 55. Meðalsnotur
- skyli manna hver:
- æva til snotur sé.
- Því að snoturs manns hjarta
- verður sjaldan glatt,
- ef sá er alsnotur er á.
- 56. Meðalsnotur
- skyli manna hver:
- æva til snotur sé.
- Örlög sín
- viti engi fyrir:
- þeim er sorgalausastur sefi.
- 57. Brandur af brandi
- brennur uns brunninn er.
- Funi kveikist af funa.
- Maður af manni
- verður að máli kunnur
- en til dælskur af dul.
- 58. Ár skal rísa
- sá er annars vill
- fé eða fjör hafa.
- Sjaldan liggjandi úlfur
- lær um getur
- né sofandi maður sigur.
- 59. Ár skal rísa
- sá er á yrkjendur fáa
- og ganga síns verka á vit.
- Margt um dvelur
- þann er um morgun sefur.
- Hálfur er auður und hvötum.
- 60. Þurra skíða
- og þakinna næfra,
- þess kann maður mjöt
- og þess viðar
- er vinnast megi
- mál og misseri.
- 61. Þveginn og mettur
- ríði maður þingi að,
- þótt hann sé-t væddur til vel.
- Skúa og bróka
- skammist engi maður
- né hests in heldur,
- þátt hann hafi-t góðan
- 62. Snapir og gnapir,
- er til sævar kemur,
- örn á aldinn mar:
- Svo er maður
- er með mörgum kemur
- og á formælendur fáa.
- 63. Fregna og segja
- skal fróðra hver,
- sá er vill heitinn horskur.
- Einn vita
- né annar skal.
- Þjóð veit, ef þrír eru.
- 64. Ríki sitt
- skyli ráðsnotra hver
- í hófi hafa.
- Þá hann það finnur
- er með fræknum kemur
- að engi er einna hvatastur.
- 65. Orða þeira
- er maður öðrum segir
- oft hann gjöld um getur.
- 66. Mikilsti snemma
- kom eg í marga staði
- en til síð í suma.
- Öl var drukkið,
- sumt var ólagað:
- Sjaldan hittir leiður í lið.
- 67. Hér og hvar
- myndi mér heim of boðið,
- ef þyrfta'g að málungi mat,
- eða tvö lær hengi
- að ins tryggva vinar,
- þar er eg hafði eitt etið.
- 68. Eldur er bestur
- með ýta sonum
- og sólar sýn,
- heilyndi sitt,
- ef maður hafa náir,
- án við löst að lifa.
- 69. Era-t maður alls vesall,
- þátt hann sé illa heill:
- Sumur er af sonum sæll,
- sumur af frændum,
- sumur af fé ærnu,
- sumur af verkum vel.
- 70. Betra er lifðum
- og sællifðum.
- Ey getur kvikur kú.
- Eld sá eg upp brenna
- auðgum manni fyrir,
- en úti var dauður fyr durum.
- 71. Haltur ríður hrossi,
- hjörð rekur handarvanur,
- daufur vegur og dugir.
- Blindur er betri
- en brenndur sé:
- Nýtur manngi nás.
- 72. Sonur er betri,
- þótt sé síð of alinn
- eftir genginn guma:
- Sjaldan bautarsteinar
- standa brautu nær,
- nema reisi niður að nið.
- 73. Tveir eru eins herjar:
- Tunga er höfuðs bani.
- Er mér í héðin hvern
- handar væni.
- 74. Nótt verður feginn
- sá er nesti trúir.
- Skammar eru skips rár.
- Hverf er haustgríma.
- Fjöld um viðrir
- á fimm dögum
- en meira á mánuði.
- 75. Veit-a hinn
- er vætki veit:
- Margur verður af aurum api.
- Maður er auðigur,
- annar óauðigur,
- skyli-t þann vítka vár.
- 76. Deyr fé,
- deyja frændur,
- deyr sjálfur ið sama.
- En orðstír
- deyr aldregi
- hveim er sér góðan getur.
- 77. Deyr fé,
- deyja frændur,
- deyr sjálfur ið sama.
- Eg veit einn
- að aldrei deyr:
- dómur um dauðan hvern.
- 78. Fullar grindur
- sá eg fyr Fitjungs sonum.
- Nú bera þeir vonar völ.
- Svo er auður
- sem augabragð:
- hann er valtastur vina.
- 79. Ósnotur maður,
- ef eignast getur
- fé eða fljóðs munuð,
- metnaður honum þróast,
- en mannvit aldregi:
- fram gengur hann drjúgt í dul.
- 80. Það er þá reynt,
- er þú að rúnum spyr
- inum reginkunnum,
- þeim er gerðu ginnregin
- og fáði fimbulþulur;
- þá hefir hann best ef hann þegir.
- 81. Að kveldi skal dag leyfa,
- konu er brennd er,
- mæki er reyndur er,
- mey er gefin er,
- ís er yfir kemur,
- öl er drukkið er.
- 82. Í vindi skal við höggva,
- veðri á sjó róa,
- myrkri við man spjalla:
- Mörg eru dags augu.
- á skip skal skriðar orka,
- en á skjöld til hlífar,
- mæki höggs,
- en mey til kossa.
- 83. Við eld skal öl drekka,
- en á ísi skríða,
- magran mar kaupa,
- en mæki saurgan,
- heima hest feita,
- en hund á búi.
II. Fyrra dæmi Óðins
breyta- 84. Meyjar orðum
- skyli manngi trúa
- né því er kveður kona,
- því að á hverfanda hveli
- voru þeim hjörtu sköpuð,
- brigð í brjóst um lagin.
- 85. Brestanda boga,
- brennanda loga,
- gínanda úlfi,
- galandi kráku,
- rýtanda svíni,
- rótlausum viði,
- vaxanda vogi,
- vellanda katli,
- 86. Fljúganda fleini,
- fallandi báru,
- ísi einnættum,
- ormi hringlegnum,
- brúðar beðmálum
- eða brotnu sverði,
- bjarnar leiki
- eða barni konungs,
- 87. Sjúkum kálfi,
- sjálfráða þræli,
- völu vilmæli,
- val nýfelldum.
- 88. Akri ársánum
- trúi engi maður
- né til snemma syni:
- Veður ræður akri.
- en vit syni:
- hætt er þeirra hvort.
- 89. Bróðurbana sínum,
- þótt á brautu mæti,
- húsi hálfbrunnu,
- hesti alskjótum:
- Þá er jór ónýtur,
- ef einn fótur brotnar.
- Verði-t maður svo tryggur
- að þessu trúi öllu.
- 90. Svo er friður kvenna,
- þeirra er flátt hyggja,
- sem aki jó óbryddum
- á ísi hálum,
- teitum, tvevetrum
- og sé tamur illa,
- eða í byr óðum
- beiti stjórnlausu,
- eða skyli haltur henda
- hrein í þáfjalli.
- 91. Bert eg nú mæli,
- því að eg bæði veit,
- brigður er karla hugur konum:
- Þá vér fegurst mælum,
- er vér flást hyggjum:
- það tælir horska hugi.
- 92. Fagurt skal mæla
- og fé bjóða
- sá er vill fljóðs ást fá,
- líki leyfa
- ins ljósa mans:
- Sá fær er fríar.
- 93. Ástar firna
- skyli engi maður
- annan aldregi.
- Oft fá á horskann,
- er á heimskan né fá,
- lostfagrir litir.
- 94. Eyvitar firna
- er maður annan skal,
- þess er um margan gengur guma.
- Heimska úr horskum
- gerir hölda sonu
- sá inn máttki munur.
- 95. Hugur einn það veit
- er býr hjarta nær,
- einn er hann sér um sefa.
- Öng er sótt verri
- hveim snotrum manni
- en sér engu að una.
- 96. Það eg þá reynda
- er eg í reyri sat
- og vætta'g míns munar.
- Hold og hjarta
- var mér in horska mær:
- þeygi eg hana að heldur hefi'g.
- 97. Billings mey
- eg fann beðjum á
- sólhvíta sofa.
- Jarls yndi
- þótti mér ekki vera
- nema við það lík að lifa.
- 98. „Auk nær aftni
- skaltu, Óðinn, koma,
- ef þú vilt þér mæla man.
- Allt eru ósköp
- nema einir viti
- slíkan löst saman.“
- 99. Aftur eg hvarf
- og unna þóttumst
- vísum vilja frá.
- Hitt eg hugða
- að eg hafa mynda
- geð hennar allt og gaman.
- 100. Svo kom eg næst
- að in nýta var
- vígdrótt öll um vakin,
- með brennöndum ljósum
- og bornum viði:
- svo var mér vílstígur of vitaður.
- 101. Og nær morgni,
- er eg var enn um kominn,
- þá var saldrótt sofin.
- Grey eitt eg þá fann
- innar góðu konu
- bundið beðjum á.
- 102. Mörg er góð mær,
- ef görva kannar,
- hugbrigð við hali.
- Þá eg það reynda,
- er ið ráðspaka
- teygða eg á flærðir fljóð.
- Háðungar hverrar
- leitaði mér ið horska man,
- og hafða eg þess vætki vífs.
III. Síðara dæmi Óðins
breyta- 103. Heima glaður gumi
- og við gesti reifur,
- svinnur skal um sig vera,
- minnugur og málugur,
- ef hann vill margfróður vera.
- Oft skal góðs geta.
- Fimbulfambi heitir
- sá er fátt kann segja:
- það er ósnoturs aðal.
- 104. Inn aldna jötun eg sótta,
- nú em eg aftur um kominn:
- fátt gat eg þegjandi þar.
- Mörgum orðum
- mælta eg í minn frama
- í Suttungs sölum.
- 105. Gunnlöð mér um gaf
- gullnum stóli á
- drykk ins dýra mjaðar.
- Ill iðgjöld
- lét eg hana eftir hafa
- síns ins heila hugar,
- síns ins svára sefa
- 106. Rata munn
- létumk rúms um fá
- og um grjót gnaga.
- Yfir og undir
- stóðumk jötna vegir,
- svo hætta eg höfði til.
- 107. Vel keypts litar
- hefi eg vel notið.
- Fás er fróðum vant.
- Því að Óðrerir
- er nú upp kominn
- á alda vé jarðar.
- 108. Efi er mér á
- að eg væra enn kominn
- jötna görðum úr,
- ef eg Gunnlaðar né nyta'g,
- innar góðu konu,
- þeirrar er lögðumk arm yfir.
- 109. Ins hindra dags
- gengu hrímþursar
- Háva ráðs að fregna
- Háva höllu í.
- Að Bölverki þeir spurðu,
- ef hann væri með böndum kominn
- eða hefði honum Suttungur of sóið.
- 110. Baugeið Óðinn
- hygg eg að unnið hafi.
- Hvað skal hans tryggðum trúa?
- Suttung svikinn
- hann lét sumbli frá
- og grætta Gunnlöðu.
IV. Loddfáfnismál
breyta- 111. Mál er að þylja
- þular stóli á
- Urðarbrunni að.
- Sá eg og þagða'g,
- sá eg og hugða'g,
- hlydda eg á manna mál.
- Of rúnar heyrða eg dæma,
- né um ráðum þögðu
- Háva höllu að,
- Háva höllu í,
- heyrða eg segja svo:
- 112. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- að þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- Þér munu góð ef þú getur:
- Nótt þú rís-at
- nema á njósn sér
- eða þú leitir þér innan út staðar.
- 113. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- að þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Fjölkunnigri konu
- skal-at-tu í faðmi sofa,
- svo að hún lyki þig liðum.
- 114. Hún svo gerir
- að þú gáir eigi
- þings né þjóðans máls.
- Mat þú vilt-at
- né mannskis gaman.
- Fer þú sorgafullur að sofa.
- 115. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- að þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Annars konu
- teygðu þér aldregi
- eyrarúnu að.
- 116. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Á fjalli eða firði,
- ef þig fara tíðir,
- fástu að virði vel.
- 117. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Illan mann
- láttu aldregi
- óhöpp að þér vita,
- því að af illum manni
- fær þú aldregi
- gjöld ins góða hugar.
- 118. Ofarla bíta
- eg sá einum hal
- orð illrar konu.
- Fláráð tunga
- varð honum að fjörlagi
- og þeygi um sanna sök.
- 119. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur
- þer munu góð ef þú getur:
- Veistu ef þú vin átt
- þann er þú vel trúir,
- farðu að finna oft.
- Því að hrísi vex
- og hávu grasi
- vegur er vætki treður.
- 120. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Góðan mann
- teygðu þér að gamanrúnum
- og nem líknargaldur meðan þú lifir.
- 121. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Vin þínum
- ver þú aldregi
- fyrri að flaumslitum.
- Sorg etur hjarta,
- ef þú segja né náir
- einhverjum allan hug.
- 122. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemi.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Orðum skipta
- þú skalt aldregi
- við ósvinna apa,
- 123. því að af illum manni
- mundu aldregi
- góðs laun um geta.
- En góður maður
- mun þig gjörva mega
- líknfastan að lofi.
- 124. Sifjum er þá blandað,
- hver er segja ræður
- einum allan hug.
- Allt er betra
- en sé brigðum að vera.
- Er-a sá vinur öðrum
- er vilt eitt segir.
- 125. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Þremur orðum senna
- skal-at-tu við þér verra mann:
- Oft inn betri bilar,
- þá er inn verri vegur.
- 126. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Skósmiður þú verir
- né skeftismiður,
- nema þú sjálfum þér sér.
- Skór er skapaður illa
- eða skaft sé rangt,
- þá er þér böls beðið.
- 127. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Hvar er þú böl kannt,
- kveð þú það bölvi að
- og gef-at þínum fjándum frið.
- 128. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Illu feginn
- ver þú aldregi,
- en lát þér að góðu getið.
- 129. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Upp líta
- skal-at-tu í orrustu!
- - gjalti glíkir
- verða gumna synir -
- síður þitt um heilli halir.
- 130. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Ef þú vilt þér góða konu
- kveðja að gamanrúnum
- og fá fögnuð af,
- fögru skaltu heita
- og láta fast vera.
- Leiðist manngi gott, ef getur.
- 131. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Varan bið eg þig vera
- og eigi of varan.
- Ver þú við öl varastur
- og við annars konu
- og við það ið þriðja
- að þjófar né leiki.
- 132. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Að háði né hlátri
- hafðu aldregi
- gest né ganganda.
- 133. Oft vitu ógerla
- þeir er sitja inni fyrir
- hvers þeir eru kyns er koma.
- Er-at maður svo góður
- að galli né fylgi,
- né svo illur að einugi dugi.
- 134. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Að hárum þul
- hlæ þú aldregi.
- Oft er gott það er gamlir kveða.
- Oft úr skörpum belg
- skilin orð koma
- þeim er hangir með hám
- og skollir með skrám
- og váfir með vílmögum.
- 135. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Gest þú né geyja
- né á grind hrekir.
- Get þú voluðum vel.
- 136. Rammt er það tré,
- er ríða skal
- öllum að upploki.
- Baug þú gef,
- eða það biðja mun
- þér læs hvers á liðu.
- 137. Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Hvar er þú öl drekkir,
- kjós þú þér jarðar megin,
- því að jörð tekur við öldri,
- en eldur við sóttum,
- eik við abbindi,
- ax við fjölkynngi,
- höll við hýrógi,
- - heiftum skal mána kveðja, -
- beiti við bitsóttum,
- en við bölvi rúnar.
- Fold skal við flóði taka.
V. Rúnatal
breyta- 138. Veit eg að eg hékk
- vindgameiði á
- nætur allar níu,
- geiri undaður
- og gefinn Óðni,
- sjálfur sjálfum mér,
- á þeim meiði
- er manngi veit
- hvers af rótum renn.
- 139. Við hleifi mig sældu
- né við horni-gi.
- Nýsta eg niður,
- nam eg upp rúnar,
- æpandi nam,
- féll eg aftur þaðan.
- 140. Fimbulljóð níu
- nam ef af inum frægja syni
- Bölþorns, Bestlu föður.
- Og eg drykk of gat
- ins dýra mjaðar,
- ausin Óðreri.
- 141. Þá nam eg frævast
- og fróður vera
- og vaxa og vel hafast,
- orð mér af orði
- orðs leitaði,
- verk mér af verki
- verks leitaði.
- 142. Rúnar munt þú finna
- og ráðna stafi,
- mjög stóra stafi,
- mjög stinna stafi,
- er fáði fimbulþulur
- og gerðu ginnregin
- og reist Hroftur rögna.
- 143. Óðinn með ásum,
- en fyr álfum Dáinn,
- Dvalinn dvergum fyrir,
- Ásviður jötnum fyrir.
- Eg reist sjálfur sumar.
- 144. Veistu hve rísta skal?
- Veistu hve ráða skal?
- Veistu hve fáa skal?
- Veistu hve freista skal?
- Veistu hve biðja skal?
- Veistu hve blóta skal?
- Veistu hve senda skal?
- Veistu hve sóa skal?
- 145. Betra er óbeðið
- en sé ofblótið.
- Ey sér til gildis gjöf.
- Betra er ósent
- en sé ofsóið.
- Svo Þundur um reist
- fyr þjóða rök,
- þar hann upp um reis,
- er hann aftur of kom.
VI. Ljóðatal
breyta- 146. Ljóð eg þau kann
- er kann-at þjóðans kona
- og mannskis mögur.
- Hjálp heitir eitt,
- en það þér hjálpa mun
- við sökum og sorgum
- og sútum görvöllum.
- 147. Það kann eg annað
- er þurfu ýta synir,
- þeir er vilja læknar lifa.
- 148. Það kann eg hið þriðja:
- ef mér verður þörf mikil
- hafts við mína heiftmögu,
- eggjar eg deyfi minna andskota,
- bíta-t þeim vopn né velir.
- 149. Það kann eg ið fjórða:
- ef mér fyrðar bera
- bönd að bóglimum,
- svo eg gel
- að eg ganga má,
- sprettur mér af fótum fjötur,
- en af höndum haft.
- 150. Það kann eg ið fimmta:
- Ef eg sé af fári skotinn
- flein í fóki vaða,
- fýgur-a hann svo stinnt
- að eg stöðvig-a-g,
- ef eg hann sjónum of sé'g.
- 151. Það kann eg ið sétta:
- Ef mig særir þegn
- á rótum rás viðar,
- og þann hal
- er mig heifta kveður,
- þann eta mein heldur en mig.
- 152. Það kann eg ið sjöunda:
- Ef eg sé hávan loga
- sal um sessmögum,
- brennur-at svo breitt,
- að eg honum bjargig-a-g.
- þann kann eg galdur að gala.
- 153. Það kann eg ið átta,
- er öllum er
- nytsamlegt að nema:
- Hvar er hatur vex
- með hildings sonum
- það má eg bæta brátt.
- 154. Það kann eg ið níunda:
- Ef mig nauður um stendur
- að bjarga fari mínu á floti,
- vind eg kyrri
- vogi á
- og svæfi'g allan sæ.
- 155. Það kann eg ið tíunda:
- Ef eg sé túnriður
- leika lofti á,
- eg svo vinn'g
- að þeir villir fara
- sinna heimhama,
- sinna heimhuga.
- 156. Það kann eg ið ellefta:
- Ef eg skal til orrustu
- leiða langvini,
- und randir eg gel,
- en þeir með ríki fara
- heilir hildar til,
- heilir hildi frá,
- koma þeir heilir hvaðan.
- 157. Það kann ef ið tólfta:
- Ef eg sé að tré uppi
- váfa virgilná,
- svo eg ríst
- og í rúnum fá'g
- að sá gengur gumi
- og mælir við mig.
- 158. Það kann eg ið þrettánda:
- ef eg skal þegn ungan
- verpa vatni á,
- mun-at hann falla,
- þótt hann í fólk komi:
- hnígur-a sá halur fyr hjörum.
- 159. Það kann eg ið fjórtánda:
- ef eg skal fyrða liði
- telja tíva fyrir,
- ása og álfa
- eg kann allra skil.
- Fár kann ósnotur svo.
- 160. Það kann eg ið fimmtánda
- er gól Þjóðrerir
- dvergur fyr Dellings dyrum.
- Afl gól hann ásum,
- en álfum frama,
- hyggju Hroftatý.
- 161. Það kann eg ið sextánda:
- Ef eg vil ins svinna mans
- hafa geð allt og gaman,
- hugi eg hverfi
- hvítarmri konu
- og sný eg hennar öllum sefa.
- 162. Það kann eg ið sautjánda
- að mig mun seint firrast
- ið manunga man.
- Ljóða þessa
- munðu, Loddfáfnir,
- lengi vanur vera.
- Þó sé þér góð ef þú getur,
- nýt ef þú nemur,
- þörf ef þú þiggur.
- 163. Það kann eg ið átjánda,
- er eg æva kenni'g
- mey né manns konu,
- - allt er betra
- er einn um kann;
- það fylgir ljóða lokum, -
- nema þeirri einni
- er mig armi ver
- eða mín systir sé.
VII. Ljóðalok
breyta- 164. Nú eru Háva mál kveðin
- Háva höllu í,
- allþörf ýta sonum,
- óþörf jötna sonum.
- Heill sá er kvað!
- Heill sá er kann!
- Njóti sá er nam!
- Heilir þeir er hlýddu!