Krummi svaf í klettagjá
Krummi svaf í klettagjá
Höfundur: Jón Thoroddsen eldri
Höfundur: Jón Thoroddsen eldri
- Krummi svaf í klettagjá,
- kaldri vetrarnóttu á,
- verður margt að meini
- Fyrr en dagur fagur rann,
- freðið nefið dregur hann
- undan stórum steini.
- Allt er frosið úti gor,
- ekkert fæst við ströndu mor
- svengd er metti mína.
- Ef að húsum heim ég fer
- heimafrakkur bannar mér
- seppi´ úr sorp að tína.
- Öll er þakin ísi jörð,
- ekki séð á holtabörð
- fleygir fuglar geta.
- En þó leiti út um mó,
- auða hvergi lítur tó;
- hvað á hrafn að éta.
- Á sér krummi ýfði stél,
- einnig brýndi gogginn vel,
- flaug úr fjallagjótum
- Lítur yfir byggð og bú
- á bænum fyrr en vakna hjú,
- veifar vængjum skjótum.
- Sálaður á síðu lá
- sauður feitur garði hjá,
- fyrrum frár á velli.
- Krunk, krunk, nafnar, komið hér,
- krunk, krunk, því oss búin er
- krás á köldu svelli.