Með landi fram 1895
Með landi fram 1895
Höfundur: Matthías Jochumsson
Höfundur: Matthías Jochumsson
- Sem fyrri horfa hyrnurnar
- svo hljótt og rótt á sæ,
- og fornu kafalds kyrnurnar
- með kúfinn sinn af snæ,
- og djúpin öll og dalirnir
- það dvelur kyrt sem fyr,
- en horfnir sýnast halirnir,
- og hvar eru þeir? eg spyr.
- Og jafnir standa jöklarnir
- með jakalöfin forn,
- og dansinn stíga stökklarnir,
- en Stígur kvaddi Horn;
- og sömu glotta gnúparnir
- — jeg get ekki að því gert,
- mér finnst sem standi strjúparnir
- með stýfðan háls um þvert. —
- Þar roðnar gamli Riturinn,
- er rennur sólin blíð,
- Og sami leyptrar liturinn,
- og lýsir Stigahlíð. —
- Þar sástu, frændi, í Fjörðunum,
- hve fagurt sólin dó,
- og gakkt þú eins frá gjörðunum
- með gullna sálarró!
- Þar kemur sem sé Kópurinn
- og kveðst ei þurfa staf:
- Hví glottir þú svo glópurinn,
- og gónir fram á haf?
- Hvar búa fornu frændurnir,
- er forðum lék eg við?
- þín borg er heil, en bændurnir
- þér blunda' á hvora hlið.
- Og traustu Látratangarnir
- sig teygja líkt og fyr,
- og allir nesja angarnir
- við ægis bíða dyr;
- og sama busl í bjarginu
- mér berst að hlustum enn
- af gamla fugla garginu,
- en — gröfin byrgir menn.
- Þar blasa yndis-eyjarnar
- um allan Breiðafjörð.
- En hvar eru mildu meyjarnar,
- þú mæra fósturjörð?
- Menn hlægja og segja: hrellingin
- um hvert mitt sitji stig,
- þá komi einhver kellingin,
- og kenna segist mig.
- En kom þú svanni sjötugur,
- og sjáðu frjálst á mig;
- minn græni kjóll er götugur,
- og gjarnan kyssi eg þig.
- Af skapa döpru dómunum
- opt dundu siðan jel
- er brauztu eitt af blómunum,
- og baðst mig fara vel.
- Með grænum jaðri á Jöklinum
- fer jórinn trés á rás;
- í sama hvíta höklinum
- þú hlærð enn, Snæfellsás.
- Hve títt á kyrru kvöldunum
- mig kætti fögur sól,
- er upp úr svölu öldunum
- hún óf þér gullin kjól.
- Þið standið rótt á rótunum,
- ó römmu hamra tröll!
- en skjótt af feigu fótunum
- er fallin mannsins höll;
- þið anzið minna árunum,
- og alda storkið þraut;
- en við erum burt á bárunum,
- sem brotna Hlés í skaut.
- En bezt þið geymið byggðina,
- og bjóðið vinum heim;
- um elsku, trú og tryggðina
- þið talið fyrir þeim.
- Í þessum háu höllunum
- sú Hulda lengi bjó,
- er farmanninn að fjöllunum
- og fósturknjánum dró.
Matth. Jochumsson.
Source Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi, 1. tölublað (12.10.1895)