Skúlaskeið
Skúlaskeið
Höfundur: Grímur Thomsen
Höfundur: Grímur Thomsen
- Þeir eltu hann á átta hófahreinum
- og aðra tvenna höfðu þeir til reiðar
- en Skúli gamli sat á Sörla einum
- svo að heldur þótti gott til veiðar.
- Meðan allar voru götur greiðar
- gekk ei sundur með þeim og ei saman,
- en er tóku holtin við og heiðar
- heldur fór að kárna reiðargaman.
- Henti Sörli sig á harða stökki,
- hvergi sinnti hann gjótum, hvergi grjóti,
- óð svo fram í þykkum moldarmekki,
- mylsnu hrauns og dökku sandaróti.
- Þynnast bráðum gerði fjandaflokkur,
- fimm á Tröllahálsi klárar sprungu,
- og í Víðikerum var ei nokkur
- vel fær nema Jarpur Sveins í Tungu.
- Ei var áð og ekkert strá þeir fengu,
- orðnir svangir jóar voru og mjóir,
- en - þótt miðlað væri mörum engu,
- móðurinn þó og kraftar voru nógir.
- Leiddist Skúla, leikinn vildi hann skakka,
- ljóp við Ok úr söðli fastar gyrti.
- Strauk hann Sörla um brjóst og stinnan makka,
- sté á bak og svo á klárinn yrti:
- Sörli minn! Þig hef ég ungan alið
- og aldrei valið nema besta fóður.
- Nú er líf mitt þínum fótum falið,
- forðaðu mér nú undan, klárinn góður.
- Það var eins og blessuð skepnan skildi
- Skúla bæn því háls og eyru hann reisti,
- frýsaði hart - og þar með gammurinn gildi
- glennti sig og fram á hraunið þeysti.
- Á kostum Sörli fór í fyrsta sinni,
- furðar dverga hve í klungrum syngur.
- Aldrei hefur enn í manna minni
- meira riðið nokkur Íslendingur.
- Tíðara Sörli en sendlingur á leiru
- sinastælta bar í gljúfrum leggi,
- glumruðu Skúla skeifurnar um eyru,
- skóf af klettunum í hófahreggi.
- Rann hann yfir urðir eins og örin
- eða skjótur hvirfilbylur þjóti.
- Ennþá sjást í hellum hófaförin,
- harðir fætur ruddu braut í grjóti.
- Örðug fór að verða eftirreiðin,
- allir hinir brátt úr sögu detta.
- En ekki urðu fleiri Skúla skeiðin,
- skeið hans fyrsta og síðasta var þetta.
- Hann forðaði Skúla undan fári þungu,
- fjöri sjálfs sín hlífði klárinn miður -
- og svo með blóðga leggi, brostin lungu
- á bökkum Hvítár féll hann dauður niður.
- Sörli er heygður Húsafells í túni,
- hneggjar þar við stall með öllum tygjum,
- krafsar hrauna salla blakkurinn brúni,
- bíður eftir vegum fjalla nýjum.