Sprettur
Sprettur
Höfundur: Hannes Hafstein
Höfundur: Hannes Hafstein
- Ég berst á fáki fráum
- fram um veg.
- Mót fjallahlíðum háum
- hleypi ég.
- Og golan kyssir kinn.
- Og á harða, harða spretti
- hendist áfram klárinn minn.
- Það er sem fjöllin fljúgi
- móti mér,
- sem kólfur loftið kljúfi
- klárinn fer.
- Og lund mín er svo létt,
- eins og gæti ég gjörvallt lífið
- geisað fram í einum sprett.
- Hve fjör í æðar færist
- fáknum með!
- Hve hjartað léttar hrærist!
- Hlær við geð
- að finna fjörtök stinn!
- Þú ert mesti gæðagammur,
- góði Léttir, klárinn minn!
- Hve hátt'ann lyftir hnakka,
- hvessir brá
- og hringar hreykinn makka.
- Horfið á!
- Sko, faxið flaksast til!
- Grundin undir syngur söngva
- slétt við Léttis hófaspil.
- En læg nú sprettinn, Léttir,
- líttu á,
- við eigum brekkur eftir,
- hún er há.
- Nú æjum við fyrst ögn,
- áður söng og hófa hljóði
- förum rjúfa fjallaþögn.