Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Draugasögur/Feðgarnir í Vestmannaeyjum

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Feðgarnir í Vestmannaeyjum

Þegar Grímur Pálsson er seinna var prestur á Helgafelli var við verzlun í Vestmannaeyjum voru þar tveir feðgar er báðir hétu Guðmundar. Var hinn eldri forsöngvari þar í Eyjunum; hinn yngri var sjómaður góður, en djarfur og ófyrirleitinn enda var hann drykkjumaður mikill. Einn vetur dreymdi Grím að hann væri í Landakirkju. Sá hann þar dyr á kórvegg sem sæti Guðmundar yngra var og þótti honum sem tólf lík væri borin þar út og mundi eitt vera lík Guðmundar yngra, en Guðmundur eldri gekk á eftir og söng þetta vers úr borðsálminum gamla í Grallaranum:

„Meðan mettuðu sig
minntust þeir sízt á þig,
tóku sér heiðna gleði,
grimm féll á þá reiði.“

Að bón Gríms réri Guðmundur á juli sínu um vertíðina við ellefta mann. En einu sinni lofaði hann í góðu veðri farlausum manni að fljóta með hinum tólfta, en á þeim degi fórst hann og hugðu menn hann hefði ofhlaðið sig.