Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Á hvalfjöru
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862)
Á hvalfjöru
Á hvalfjöru
Einu sinni kom Jón á hvalfjöru. Beiddi hann þá eigendur og skurðarmenn að gefa sér so mikið af hval sem eykurinn sinn bæri. Þeir urðu fúsir á að láta af hendi rakna so lítið lítilræði, skáru rytjur og réttu að Jóni, en hann tíndi á hestinn þangað til ætlað var að fimmtíu vættir væru. Þá sezt Jón upp á og ríður til þess hann kom að vallargarði sínum. Þar sökk hesturinn, en Jón sat á hvalhrúgunni.