Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Þjófastefna
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862)
Þjófastefna
Þjófastefna
Til voru og særingar á latínu sem klerkar höfðu við ýms tækifæri og verður ein þeirra síðar sett þar sem rætt verður um kölska. Þess er áður getið að fyrri menn hafi haft ýms brögð í frammi bæði til að vita hver stolið hefði og til að láta þjófa skila aftur stolnu fé. Hér skulu nú standa að lyktum tvær stefnur sem hlýða sín til hvors.
„Það mæli ég fyrir þjófi þeim sem stolið hefur þessum hlut að hann ærist og uppþembist með ærna pínu og hann hafi hvergi frið fyrr hann kemur fram fyrir mig með þann hlut sem hann hefur frá mér stolið. Þar til hjálpi Þór og Óðinn.“ En ef þjófurinn hefur étið þá skal lesa þetta: „Upp skaltu spúa þeim hlut sem þú stalst.
- Svo skal búkur þinn
- blásast fullur
- og innan rifinn
- allur vera.
- Nú skulu gaula
- garnir þínar
- og þær allar
- innan klórast.
- Felli ég á þig
- svofelldum orðum
- að brjóst þitt og búkur
- brennandi veri
- sem þig um hjartað
- hundar rífandi bíti.
- Brjóst þitt ruglist allt og sinni.
- Banna ég þér
- á bók helga líta.
- Kvistur skal þér
- úr hálsi koma, verstur strákur,
- og skulu þau áhrínsorð
- þér til meins standa.
- Spú þú nú
- eða springdu allur.
- Þar til hjálpi
- Þór og Óðinn
- að þjófur afsaki sig eigi.“
Rist þessa stafi á eik og haf í hendi þér þá þjófurinn kemur: