Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Fáðu mér duluna mína Mangi
„Fáðu mér duluna mína Mangi“
Magnús prestur sem síðar var á Hörgslandi þótti hinn gáfaðasti í uppvexti; var hann því settur til mennta í Skálholtsskóla. En fyrsta veturinn sem hann var í skóla varð hann að allra manna athlægi því hann hafði snögglega misst námsgáfur sínar án allra orsaka. Þótti kennurum hans hann ei líkur að gáfum eftir því sem áður var af honum látið. Var hann fyrir þessa sök hafður þar í litlu gildi.
Sigurður hét skólapiltur sem hafður var í mestum metum fyrir framúrskarandi gáfur í þann tíma þar í skólanum. Hann hafði fengið mjög ákafa ást til stúlku nokkurrar sem var á staðnum, en hún vildi í engan máta aðhyllast hann. Féll honum þetta svo mikils að hann grandaði sér sjálfur. Síðan var lík hans borið í kirkjuna og eftir sem þá var siður til hlaut einhver að vaka yfir því um nóttina. Kom það hlutfall á Magnús sem fór út í kirkju um kvöldið og bjóst til að vaka. En sem þriðjungur var af nótt sér hann að kistan hreyfist og þar næst rís draugurinn upp og sprettir af sér hjúpnum og skilur hann eftir, en gengur sjálfur út úr kirkjunni; veit Magnús ei meir um hann. Nú hugsar hann sér ráð meðan draugsi er burtu, tekur þar nýjan færisstreng er hann finnur, og leggur hann á kistubarminn, en tekur hjúpinn til sín. En að stundu liðinni kemur draugurinn og mælti: „Fáðu mér duluna mína Mangi.“ „Ekki gjöri ég það,“ segir hann, „nema þú segir mér hvað þú varst að gjöra síðan í nótt að þú fórst burtu.“ „Ég var,“ mælti draugurinn. „að finna stúlkuna mína. Ætla ég mér að njóta hennar dauður fyrst ég gat það ei í lífinu.“ Þá mælti Magnús: „Drapstu hana þá?“ „Svo má það kalla,“ sagði draugurinn, „og fáðú mér nú duluna mína Mangi.“ „Ekki gjöri ég það nema þú segir mér hvernig lífga megi stúlkuna,“ sagði Magnús. „Þar munu fáir til verða,“ mælti draugurinn, „og gildir mig því einu þó ég segi þér það, og er sú aðferð til þess að leggja hana í sæng og hátta þar hjá henni og strjúka hana með vörmum höndum því ég fal allt lífið úr henni undir annari litlu tánni á henni sjálfri, og fáðu mér nú duluna mína Mangi.“ „Ekki gjöri ég það,“ segir Magnús, „nema þú segir mér hvernig því var varið að ég missti námsgáfuna þegar ég kom hingað í haust.“ „Djöfullinn tók hana frá þér,“ kvað draugurinn, „svo þér skyldi ei auðnast að vera prestur.“ „Seg mér,“ kvað Magnús, „hvað þú áttir að verða.“ „Ég átti að verða prestur,“ mælti draugurinn, „og átti ég að verða þrígiftur.“ „Illa hefur þú farið með þig,“ mælti Magnús. „Satt er það Mangi,“ mælti draugurinn, „og fáðu mér nú duluna mína.“ „Aldrei gjöri ég það,“ segir Magnús, „nema þú gefir mér nokkuð af þeim gáfum sem þú hafðir í lífinu.“ „Þorir þú þá að leggjast undir mig?“ mælti draugurinn. „Já,“ kvað Magnús. Síðan lagðist hann niður og draugurinn ofan á hann. Síðan blés hann stroku mikilli ofan í Magnús og spurði hvort það væri ei nóg. Hann kvað nei við. Þá blés draugurinn í annað sinn og spyr hvort ei sé nóg komið. En Magnús neitaði og bað hann blása í þriðja sinn. „Þá máttu vara þig,“ kvað draugurinn, „því þeim innblástri fylgir ódaunn mikill og ef þú lifir eða stenzt þetta þá muntu verða nógu margfróður.“ Magnús kvaðst til hætta. Síðan blés draugurinn í þriðja sinn ofan í hann svo mikilli fýlu að Magnús vissi ei meir af sér og vaknaði ei fyrr en á björtum degi og við það að staðarmenn vóru þar að stumra yfir honum. Hann skipar þá að hefja söng yfir líkinu og grafa síðan. Var hann forsöngvari. Undruðust þá allir hve fögur hljóð að Magnús væri búinn að fá þar öllum þótti sem það væri rödd Sigurðar (draugsins).
Eftir það lætur hann leggja lík stúlkunnar í sængurrúm og háttar sjálfur hjá henni, fer að öllu sem draugurinn sagði honum unz hún lifnaði við. Þar eftir hóf Magnús að nýju lærdóm sinn í skólanum. Var enginn jafn honum að gáfum og fannst þá kennurum hans þær svo líkar þeim gáfum sem Sigurður (draugurinn) hafði haft. En sem hann útskrifaðist úr skóla gekk hann að eiga þessa stúlku sem hann lífgaði og var það fyrsta konan hans því hann varð þrígiftur. Síðan varð hann prestur á Hörðslandi (eða Hörgslandi) og hafa margar kynstrasagnir af honum sagðar verið, þar hann átti í stríði við drauga og afturgöngur alla sína ævi, en bar þó jafnan hærra hlut í þeim viðskiptum.