Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Fúsi mætir Gróu
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862)
Fúsi mætir Gróu
Fúsi mætir Gróu
Einhvörn tíma var Fúsi á ferð og mætir kerlingu er Gróa hét. Hafði kerling ekki gifzt né barn átt, en var öldruð orðin og hrokkin. Þá kvað Fúsi:
- „Þú ert meyja Gróa grett,
- grálynd, þeygi lófanett,
- kviðardregin, þjóaþétt,
- þægðum flegin, rófubrett.“
Þá kvað Gróa kerling aftur:
- „Þú ert, Fúsi, sóðasveinn
- í sinnuhúsi ljótur einn;
- þinn er lúsanóti ei neinn,
- næstur Brúsa þrjótur beinn.“
Yfirgaf þá Fúsi kerlingu þegjandi.