Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Galdra-Loftur

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Galdra-Loftur

Loftur hét skólapiltur einn á Hólum; hann lagði alla stund á galdur og kom öðrum til þess með sér þó ekki yrði meira úr því fyrir þeim en kuklið eitt. Æsti Loftur skólabræður sína til þess að gjöra öðrum ýmsar galdraglettur og sjálfur var hann forsprakkinn. Einu sinni fór Loftur heim til foreldra sinna um jólin; tók hann þá þjónustustúlku á staðnum, járnaði hana og lagði við hana beizli og reið henni svo í gandreið heiman og heim; lá hún lengi eftir af sárum og þreytu, en gat engum frá sagt meðan Loftur lifði. Öðru sinni barnaði Loftur vinnukonu á staðnum og drap hann þá barnsmóður sína með gjörningum; henni var ætlað að bera aska í eldhús og úr því; voru þeir til flýtis bornir á nokkurs konar trogmynduðu verkfæri er hét askafloti og tók marga aska í einu; lét Loftur opnast göng fyrir henni í miðjum vegg svo hún gekk inn í þau. En sökum þess stúlkan varð þá hrædd og hikaði hreif galdurinn svo veggurinn luktist aftur. Löngu seinna, þegar veggurinn var rifinn, fannst í honum beinagrind af kvenmanni uppistandandi með askahrúgu í fanginu og ófullburða barnsbein í holinu.

Þorleifur prófastur Skaftason vandaði um við Loft því hann var dómkirkjuprestur um þær mundir. En Loftur skipaðist lítt við það; bekktist hann síðan stundum til við prófast, en gat ekki gjört honum neitt mein því hann var svo mikill guðsmaður að ekkert óhreint gat grandað honum. Einhvern tíma reið prófastur til kirkju og átti að fara yfir Hjaltadalsá í leysingu og vexti; varð hesturinn þá staður og hræddist svo prófastur varð að ganga af honum í miðri á; greip hann hempupoka sinn og óð til lands; sakaði hann ekki og flutti messu um daginn. Þá var þessi vísa kveðin:

„Furðar mig á fréttum þeim,
fótgangandi var hann;
þegar hann kom til Hóla heim
hempuna sína bar hann.“

Ekki létti Loftur fyrr en hann hafði lært allt sem var á Gráskinnu og vissi það út í hörgul; leitaði hann þá fyrir sér til ýmsra galdramanna, en enginn vissi þá meir en hann. Hann gjörðist nú svo forn og illur í skapi að allir skólapiltar urðu hræddir við hann; þorðu þeir ekki annað en láta allt vera sem hann vildi þó þeim stæði stuggur af.

Einhvern tíma snemma vetrar kom Loftur að máli við skólapilt einn sem hann vissi að var hugaður og bað hann að hjálpa sér til að vekja upp biskupa þá hina fornu. Hinn taldist undan, en Loftur kvaðst þá mundi drepa hann. Skólapilturinn spurði hvert gagn hann mætti vinna honum þar sem hann kynni engan galdur. Loftur sagði hann þyrfti ekki annað en standa í stöplinum og halda í klukkustrenginn, hreyfast hvergi, en horfa stöðugt á sig og taka í klukkuna jafnsnart og hann gæfi honum merki með hendinni. „Vil ég nú,“ mælti Loftur, „segja þér gjörla af áformi mínu; þeir sem eru búnir að læra galdur viðlíka og ég geta ekki haft hann nema til ills og verða þeir allir að fyrirfarast hvenær sem þeir deyja, en kunni maður nógu mikið þá hefur djöfullinn ekki lengur vald yfir manninum, heldur verður hann að þjóna honum án þess að fá nokkuð í staðinn eins og hann þjónaði Sæmundi fróða, og hver sem veit svo mikið er sjálfráður að því að brúka kunnáttu sína svo vel sem hann vill. Þessari kunnáttu er nú á dögum ekki auðið að ná síðan Svartiskóli lagðist af og Gottskálk biskup grimmi lét grafa Rauðskinnu með sér; vil ég því vekja hann upp og særa hann til að láta Rauðskinnu af hendi við mig, en þá munu allir hinir gömlu biskupar rísa á fætur því þeir munu ekki þola eins miklar særingar yfir sér og Gottskálk, og mun ég láta þá segja mér þá forneskju sem þeir vissu í lifanda lífi og kostar það mig ekki mikla fyrirhöfn því það má sjá það á svipnum hvort maðurinn hefur kunnað galdra eða ekki. En hina seinni biskupa get ég ekki vakið upp því þeir eru allir grafnir með ritninguna á brjóstinu. Dugðu nú vel og gjörðu eins og ég legg fyrir þig og hringdu hvorki of fljótt né of seint því við því liggur stundleg og eilíf velferð mín; skal ég þá launa þér svo vel að enginn annar skal þér fremri.“

Þeir bundu nú þetta fastmælum og fóru á fætur skömmu eftir háttatíma og upp í kirkju. Tunglskin var úti svo bjart var í kirkjunni; nam skólapilturinn staðar í stöplinum, en Loftur fór upp í prédikunarstól og tók að særa. Kom bráðum maður upp úr gólfinu með alvarlegum og þó mildum svip og hafði kórónu á höfði; þóttist skólapiltur vita að þar mundi kominn hinn elzti biskup; hann sagði við Loft: „Hættu vesall maður meðan tóm er til því þungar munu þér bænir Gvöndar bróður míns ef þú ónáðar hann.“ Loftur sinnti því ekki og hélt áfram að særa. Komu nú allir hinir gömlu biskupar í röð upp úr gröfum sínum í hvítum sloppum með krossmark á brjósti og staf í hendi. Allir skiptu þeir eitthvað lítið orðum við Loft, en ekki er getið hvað það var. Þrír þeirra höfðu kórónu á höfðum, hinn fyrsti og seinasti og sá sem stóð í miðið (líklega Guðmundur Arason þó það skakki nokkru). Engin forneskja duldist með neinum þeirra. Gottskálk þrumdi þetta af sér; tók þá Loftur að særa fyrst að marki og snéri máli sínu að Gottskálki einum; snéri hann þá iðrunarsálmum Davíðs upp á djöfulinn og gjörði játningu fyrir allt sem hann hefði vel gjört. Stóðu þá þrír hinir kórónuðu biskupar lengst frá með upplyftum höndum og snéru andlitum móti Lofti, en hinir horfðu undan og á þá. Heyrðust þá dunur miklar og kom upp maður með staf í vinstri hendi og rauðri bók undir hinni hægri; ekki hafði hann krossmark á brjósti; leit hann óhýru auga til biskupanna, en horfði glottandi til Lofts er særði þá sem fastast. Gottskálk færðist hóti nær og sagði háðslega: „Vel er sungið, sonur, og betur en ég hugði, en eigi nær þú Rauðskinnu minni.“ Loftur umhverfðist þá og hamaðist og var sem aldrei hefði hann sært fyrr. Snéri hann þá blessunarorðunum og faðirvori upp á djöfulinn; kirkjan hrikti öll og lék á reiðiskjálfi. Virtist skólapiltinum sem Gottskálk þokaðist nær Lofti og rétti með semingi að honum eitt horn bókarinnar; hafði hann áður verið smeykur, en skalf nú af ótta og sortnaði fyrir augum; virtist honum sem biskup brygði upp bókinni og Loftur rétti fram höndina; hugði hann þá að hann gæfi sér merki og tók í klukkustrenginn; hvarf allt þá ofan í gólfið með þys miklum. Loftur stóð stundarkorn höggdofa í stólnum og lagði höfuð í höndur sér, stumraði síðan hægt ofan og fann lagsmann sinn; stundi hann þá við og mælti: „Nú fór verr en skyldi og get ég þó ekki gefið þér sök á því. Ég mátti vel bíða dögunar; mundi biskup þá hafa sleppt bókinni og lagt hana sjálfur upp til mín því ekki hefði hann unnið það til að ná ekki aftur gröf sinni og ekki heldur leyfzt það vegna hinna biskupanna; en hann varð drýgri en ég í viðskiptum okkar því þegar ég sá bókina og heyrði frýjunarorð hans gjörðist ég svo óður að ég hugðist að hafa hana strax með særingum. Rankaði ég fyrst við mér þegar svo langt var komið að hefði ég farið einu særingarstefi lengra þá mundi kirkjan hafa sokkið, og það var það sem hann ætlaðist til. Ég sá í sama bili í andlit hinna krýndu biskupa og varð felmt við, en vissi þú mundir falla í ómegin við klukkustrenginn og hún þá gefa hljóð af sér, en bókin var svo nærri mér að mér virtist ég geta náð henni enda kom ég við horn hennar og munaði ekki öðru en því að ég hefði náð svo góðu haldi á henni eins og þurfti til að fella hana ekki niður. En svo verður að fara sem auðið er, og er útséð um velferð mína, en laun þín. Skulum við samt láta þetta liggja í kyrrþey.“

Loftur varð nú hljóður mjög og því næst sturlaður svo hann þoldi ekki að vera einn og kveikja varð ljós yfir honum þegar rökkva tók; fór hann að mæla fyrir munni sér: „Sunnudaginn í miðföstu verð ég í helvíti og kvölunum.“ Var honum þá ráðið til að flýja til séra N. á Staðarstað (sögumaðurinn tilgreindi nafnið, en mér hefur fallið það úr minni). Hann var þá aldraður; var hann trúmaður mikill og klerkur bezti; batnaði öllum sturluðum eða þeim sem höfðu orðið fyrir gjörningum ef hann lagði hendur yfir þá. Loftur leitaði sér þá hælis hjá honum; kenndi prestur í brjósti um hann og tók við honum; lét hann Loft aldrei við sig skilja nótt né dag, úti né inni. Hresstist nú Loftur mikið; en þó varð presti aldrei ugglaust um hann; stóð honum mestur stuggur af því að Loftur vildi aldrei biðjast fyrir með honum. Þó fylgdi Loftur presti þegar hann vitjaði sjúkra og freistaðra, og var þá viðstaddur. Bar það þó oft við svo prestur fór aldrei svo að heiman að hann hefði ekki hempu sína, brauð og vín, kaleik og patínu með sér.

Svona leið nú þangað til laugardaginn fyrir sunnudaginn í miðföstu; var Loftur þá sjúkur og sat prestur fyrir framan hann og hressti hann með kristilegum samræðum. En um dagmálabil komu honum orð frá vini hans í sókninni að hann væri kominn að andláti og óskaði að prestur vildi þjónusta sig og búa sig undir guðrækilegt andlát. Prestur gat hvorki né vildi neita því. Leitaði hann þá til við Loft hvort hann gæti ekki fylgt sér, en hann kvaðst hvergi mega hrærast fyrir verkjum og óstyrkleik. Prestur kvað honum líka duga mundi ef hann kæmi ekki út undir bert loft meðan hann væri burtu. Loftur lofaði því; blessaði prestur síðan yfir hann og minntist við hann og fyrir bæjardyrum féll hann á kné og baðst fyrir og gjörði krossmark fyrir þeim. Heyrðu menn hann þá mæla fyrir munni sér: „Guð má vita hvort þessum manni verður bjargað og hvort ekki liggja kröftugri bænir móti honum en mínar.“ Prestur fann síðan manninn, veitti honum alla þjónustu og var viðstaddur andlát hans, en síðan flýtti hann sér af stað og reið hart mjög, sem þó var ei venja hans.

Þegar prestur var farinn hresstist Loftur brátt. Veður var hið fegursta og vildi hann því fyrir hvern mun koma út. Karlmenn voru farnir til vers og ekki aðrir heima en konur og ungmenni er ekki tjáði að letja hann. Loftur gekk nú til annars bæjar; þar var aldurhniginn bóndi, heldur óþokkasæll, er var hættur að róa; hvatti Loftur hann til að hvolfa upp litlum bát er hann átti og róa lítið út fyrir landsteina og renna færi sér til skemmtunar; lét bóndi að orðum hans. Logn hélzt allan daginn, en til bátsins hefur aldrei spurzt síðan og þótti það undarlegast að ekki rak af honum svo mikið sem árarblað. Maður þóttist sjá það af landi að grá hönd loðin hefði komið upp þegar báturinn var kominn út fyrir landsteinana og hefði tekið um skutinn þar sem Loftur sat og dregið svo allt saman í kaf.