Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Hold mitt líður nú hryggð og kvöl
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
„Hold mitt líður nú hrygð og kvöl“
„Hold mitt líður nú hrygð og kvöl“
Maður var einu sinni á ferð; áði á árbakka. Dreymdi hann þá að sagt var nálægt honum:
- „Hold mitt líður nú hryggð og kvöl.“
Við það vaknaði hann, sá engan, sofnaði aftur og dreymdi enn að sagt var:
- „Hérvist mannleg er lítil dvöl.“
Vaknaði hann, en sofnar aftur:
- „Líkaminn sofi sætt með frið.“
Vaknar hann enn, litast um, en sá engan; sofnar því aftur og dreymir enn að sagt er:
- „Sálin í Kristi vakni við.“[1]
Við það vaknar hann og sér dauðan mann bera niður eftir straumnum.
- ↑ Þetta er nærri orðrétt versið 3 í sálminum: „Jesús frelsari fólks á jörð.“ [Hdr.]