Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Látra-Björg og duggan
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
Látra-Björg og duggan
Látra-Björg og duggan
Það er mælt að Látra-Björg hafi verið kraftaskáld og er það haft til marks að eitt sinn er sigling hafði lengi dregizt kvað hún þetta:
- Vaxi mugga og vindurinn,
- vil ég brugga ljóða slag,
- sigli dugga ein hér inn
- oss að hugga nú í dag.
Er mælt það hafi gengið eftir er óskað var eftir í vísunni.