Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Goðfræðisögur/Álfar hjá Ásgarði

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Álfar hjá Ásgarði

Smalapiltur nokkur lék það að list og vana að kasta steinum í jarðholu eina sem er í álfhólnum hjá Ásgarði í Hvammssveit. Þegar þessu hafði farið fram um hríð varð húsbóndi hans veikur; dreymdi hann þá einu sinni að huldumaður kæmi til sín og segði við sig að ef hann vildi verða heill heilsu aftur yrði hann að lumbra á smalanum sínum svo hann munaði um því hann lægi á því lúalagi að kasta grjóti inn í híbýli sín og hefði þegar meitt drenginn sinn illa á höfðinu með einum steininum. Þegar bóndi hafði gjört eins og fyrir hann var lagt fékk hann aftur heilsuna.