Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Goðfræðisögur/Þuríðartorfa í Pétursey
Þuríðartorfa í Pétursey
Vestan í Pétursey er brekka einstök sem nær neðan frá sléttu og upp á brún á fjallinu og er svo sagt að í fornöld hafi börn mörg verið að skemmta sér á fögru vetrarkvöldi að bruna sér á klakatorfu í brekku þessari. Börnin voru kát og höfðu hátt við sig. Allt í einu heyrðist þeim sem kallað væri snögglega: „Hættið þið!“ Varð þeim þá bilt við og hættu öll nema tvær stúlkur; fóru þær hátt upp í brekkuna og brunuðu sér þaðan. Var þá enn kallað til þeirra sem fyrr: „Hættið þið!“ en þær hættu ekki að heldur. Litlu síðar var kallað til þeirra í þriðja sinn með sama hætti. Önnur þeirra sem Þuríður hét sagðist ekki myndi hætta fyrir þetta og fór upp á brún og brunaði þaðan. Segir þá sagan að Þuríður hafi brunað ofan alla brekkuna, en gat ekki stanzað þó sléttlendið tæki við, heldur hafi torfan hlaupið með Þuríði alla leið út í sjó sem er þó langur vegur. Týndist Þuríður þar og heitir brekkan síðan Þuríðartorfa.