Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Goðfræðisögur/Hildur álfadrottning

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862)
Hildur álfadrottning

Einu sinni bjó bóndi á bæ nokkrum til fjalla og er þess hvorki getið hvað hann hét né bærinn. Bóndi var ókvongaður, en bjó með bústýru er Hildur hét, og vissu menn ógjörla um ætt hennar. Hún hafði öll ráð innanstokks á heimilinu og fóru henni flestir hlutir vel úr hendi. Hún var geðþekk öllum heimamönnum og þar með bónda, en þó bar ekki á að hugir þeirra færi saman um of, enda var hún stillt kona og heldur fálát, en þó viðmótsgóð.

Heimilishagur bónda stóð með blóma miklum nema að því einu að hann átti illt með að fá smalamenn, en hann var sauðabóndi góður og þótti sem fóturinn færi undan búi sínu ef sauðamann brysti. Kom þetta hvorki af því að bóndi væri harður við smala sína né heldur af því að bústýran léti á vanta það er hún átti til að leggja. Hitt var heldur sem á milli bar að þeir urðu þar ekki gamlir og fundust jafnan dauðir í rúmi sínu á jóladagsmorguninn.

Á þeim tímum var það lenzka hér á landi að messað var á jólanóttina og þótti ekki minna hátíðabrigði að því að fara þá til kirkju en á sjálfan jóladaginn. En af fjallbæjum, þaðan sem langt var til kirkju, var það ekkert heimtak að fara til tíða og vera kominn þar í tækan tíma fyrir þá sem svo stóð á fyrir að ekki gátu orðið fyrr tilbúnir að heiman en stjarnan var komin jöfnu báðu hádegis og dagmála eins og gjarnast var að sauðamenn kæmu ekki fyrr heim hjá bónda þessum. Ekki þurftu þeir að vísu að gæta bæjarins sem ávallt var venja að einhver gerði aðfanganætur jóla og nýjárs meðan annað bæjarfólk væri við tíðir; því frá því Hildur kom til bónda hafði hún ávallt orðið til þess sjálfboðin um leið og hún annaðist það sem gera þurfti fyrir hátíðarnar, matseld og annað sem þar að lýtur, og vakti hún yfir því allajafna langt fram á nótt svo að kirkjufólkið var oft komið aftur frá tíðum, háttað og sofnað áður en hún fór í rúmið.

Þegar svo hafði gengið langa hríð að sauðamenn bónda höfðu allir orðið bráðkvaddir á jólanóttina fór þetta að verða héraðsfleygt og gekk bónda af því alltreglega að ráða menn til starfa þessa og því verr sem fleiri dóu. Lá þó alls enginn grunur á honum né öðrum heimamönnum hans að þeir væri valdir að dauða sauðamanna sem allir höfðu dáið áverkalaust. Loksins kvaðst bóndi ekki geta lagt það lengur á samvizku sína að ráða til sín smala út í opinn dauðann og hljóti nú auðna að ráða hversu fari um fjárhöld sín og fjárhag.

Þegar bóndi hafði staðráðið þetta og hann var orðinn með öllu afhuga að vista nokkurn til sín í því skyni kemur eitt sinn til hans maður vaskur og harðlegur og býður honum þjónustu sína. Bóndi segir: „Ekki þarfnast ég þjónustu þinnar svo að ég vilji við þér taka.“ Komumaður mælti: „Hefur þú ráðið sauðamann til bús þíns næsta vetur?“ Bóndi kvað nei við og kvaðst ekki hafa ásett sér að gjöra það oftar, „og muntu heyrt hafa fyrir hverjum ósköpum sauðamenn mínir hafa orðið til þessa.“ „Heyrt hef ég það,“ segir komumaður, „en ekki munu forlög þeirra fæla mig frá fjárgeymslu fyrir þig ef þú vilt við mér taka.“ Bóndi lét það þá eftir honum með því hinn sótti fast á að hann réði hann til sín fyrir sauðamann. Eftir þetta líða tímar fram svo að hvorum hugnar vel við annan, bónda og sauðamanni, og eru allir vel til hans því að hann var háttprýðismaður, ódeigur og ötull til hvers sem reyna skyldi.

Nú bar ekki til tíðinda fram að jólum; fer þá sem vant er að bóndi fer með heimamönnum sínum til kirkju á aðfangadagskvöldið nema bústýra hans var ein eftir heima og sauðamaður yfir fénu; fer svo bóndi og skilur þau eftir svona sitt í hvoru lagi. Líður nú fram á kvöldið til þess að sauðamaður kemur heim eftir venju; borðar hann þá mat sinn og gengur að því búnu til náða og leggst út af. Kemur honum nú í hug að varlegra mundi sér vera að vaka en sofna hvað sem í kynni að skerast, en var samt alls óhræddur og liggur hann því vakandi. Þegar langt er liðið á nótt heyrir hann að kirkjufólkið kemur; tekur það sér bita og fer síðan að sofa. Ekki verður hann enn neins vísari, en það finnur hann þegar hann ætlar alla sofnaða að máttinn fer að draga úr sér sem von var, daglúnum manni. Þykist hann nú illa beygður ef svefninn skal sigra sig og neytir því allrar orku til að hressa af sér. Líður nú eftir það lítil stund áður hann heyrir að komið er að rúmi sínu, og þykist hann skynja að þar er Hildur bústýra á ferð. Læzt hann þá sofa sem fastast og finnur að hún er að hnoða einhverju upp í sig. Skilur hann þá að þetta muni vera gandreiðarbeizli og lofar henni að koma því við sig. Þegar hún er búin að beizla hann teymir hún hann út sem henni var hægast, fer á bak honum og ríður slíkt sem af tekur þangað til hún kemur þar að sem honum virðist vera gryfja nokkur eða jarðfall. Þar fer hún af baki við stein einn og tekur ofan taumana; að því búnu hverfur hún honum sjónum ofan í jarðfallið.

Sauðamanni þótti illt og ófróðlegt að missa svo af Hildi að hann vissi ekki hvað af henni yrði. En það fann hann að ekki mátti hann langt komast með beizlinu; svo fylgdi því mikil forneskja. Hann tekur því það til bragðs að hann nýr höfuð sitt við stein þann er fyrr er getið þangað til hann kemur fram af sér beizlinu og lætur það þar eftir verða. Síðan steypir hann sér ofan í jarðfallið þar sem Hildur hafði undan farið. Finnst honum að hann hafi ekki farið lengi eftir jarðfallinu áður hann sér hvar Hildur fer; er hún þá komin á fagra velli og slétta og ber hana nú fljótt yfir. Af þessu öllu saman þykist hann nú skilja að ekki sé einleikið með Hildi og að hún muni hafa fleiri brögð undir stakki en á var að sjá í mannheimum eða ofan jarðar. Það þykist hann og vita að hún muni þegar sjá sig ef hann gangi niður á vellina eftir henni. Tekur hann þá hulinhjálmstein er hann bar á sér og heldur honum í vinstri lófa; síðan tekur hann á rás eftir henni og fór sem hann má harðast.

Þegar hann sækir lengra fram á völlinn sér hann höll mikla og skrautlega, og heldur Hildur þangað sem leið liggur. Þá sér hann og að múgur manns kemur frá höllinni og fer út í móti henni. Á meðal þeirra er einn maður er fremstur fer; hann var langtígulegast búinn og þykir sauðamanni sem hann heilsi konu sinni er Hildur kemur og bjóði hana velkomna, en hinir sem með hinum tigna manni voru fögnuðu henni sem drottningu sinni. Með tignarmanninum voru og tvö börn nokkuð stálpuð er fóru með honum í móti Hildi og fögnuðu þau þar móður sinni fegins hugar. Þegar lýður þessi hafði heilsað drottningu fylgdu allir henni og konungi til hallarinnar og eru henni þar veittar hinar virðulegustu viðtökur, þar með er hún færð í konunglegan skrúða og dregið gull á hönd henni. Sauðamaður fylgdi múganum til hallarinnar, en var þó ætíð þar er hann var minnst fyrir umgangi, en gat þó séð allt sem gjörðist í höllinni. Í höllinni sá hann svo mikinn og dýrlegan umbúnað að aldrei hafði hann slíkan fyrr augum litið; var þar sett borð og matur á borinn, og undrar hann mjög öll sú viðhöfn. Eftir nokkra stund sér hann Hildi koma í höllina og var hún þá skrýdd skrúða þeim sem fyrr er nefndur. Er þá skipað mönnum í sæti og sezt Hildur drottning í hásæti hjá konungi, en hirðin öll til beggja hliða og matast menn nú um hríð. Síðan voru borð upp tekin og gengu þá hirðmenn og hirðmeyjar til dansleika, þeir sem það vildu, en aðrir völdu sér aðra skemmtun er það hugnaði betur; en þau konungur og drottning tóku tal með sér og virtist sauðamanni samtal þeirra bæði blítt og angurblandið.

Meðan þau ræddust við konungur og drottning komu til þeirra þrjú börn yngri en þau sem áður er getið og fögnuðu þau einnig móður sinni. Hildur drottning tók því og blíðlega; tók hún yngsta barnið og setti í kné sér og lét að því alúðlega, en það brekaði og var óvært. Setti þá drottning af sér barnið, dró hring einn af hendi sér og fékk því að leika sér að. Barnið þagnaði þá og lék sér um hríð að gullinu, en missti það loksins á gólfið. Var sauðamaður þar nærstaddur; varð hann fljótur til, náði hringnum er hann féll á gólfið, stakk honum á sig og geymdi vandlega, og varð enginn þessa var, en öllum þótti kynlegt er hringurinn fannst hvergi þegar leitað var.

Þegar langt var liðið á nótt fram fór Hildur drottning að hreyfa sér til ferðar, en allir þeir sem innan hallar voru beiddu hana að dvelja lengur og voru mjög hryggir er þeir sáu ferðasnið á henni. Sauðamaður hafði veitt því eftirtekt að á einum stað í höllinni sat kona öldruð mjög og heldur illileg; hún var sú eina af öllum sem þar voru inni er hvorki fagnaði Hildi drottningu þegar hún kom né latti hana burtfarar. Þegar konungur sá ferðasnið á Hildi og hún vildi ekki kyrr vera hvorki fyrir bænastað hans né annara gekk hann til þessarar konu og mælti: „Tak nú aftur ummæli þín, móðir mín, og virð til bænir mínar að drottning mín þurfi ekki lengur að vera fjarvistum og mér verði svo lítil og skammvinn unaðsbót að henni sem verið hefur um hríð.“ Hin aldraða kona svaraði honum heldur reiðuglega: „Öll mín ummæli skulu standa og enginn er þess kostur að ég taki þau aftur.“ Konungur hljóðnaði við og gekk harmþrunginn aftur til drottningar, lagði hendur um háls henni og minntist við hana og bað hana enn með blíðum orðum að fara hvergi. Drottning kvaðst ekki annað mega fyrir ummælum móður hans og taldi það líkast að þau mundu ekki oftar sjást sökum óskapa þeirra er á sér lægju og að manndráp þau er af sér hefðu staðið og svo mörg væri orðin mundu nú ekki lengur geta leynzt, og mundi hún því hreppa makleg gjöld verka sinna þótt hún hefði nauðug orðið að vinna þau.

Meðan hún taldi harmatölur þessar fór sauðamaður að hafa sig til vegs út úr höllinni er hann sá hvernig á stóð, og svo beina leið yfir völluna að jarðfallinu og þar upp sem leið lá. Síðan stakk hann á sig hulinhjálmssteininum, lét á sig beizlið og beið svo þess að Hildur kæmi. Að lítilli stundu kemur Hildur drottning þar ein og döpur í bragði; sezt hún þá enn á bak honum og ríður heim. Þegar hún kemur þar leggur hún sauðamann í rúm hans kirfilega og tekur þar fram af honum beizlið, gengur síðan til rúms síns og leggst að sofa. Þó sauðamaður væri allan þenna tíma glaðvakandi lét hann sem hann svæfi svo að Hildur yrði einskis vör annars. En er hún var gengin til rekkju hefur hann engan andvara á sér framar; sofnar hann þá fast og sefur fram á dag sem von var.

Morguninn eftir fer bóndi fyrstur á fætur af öllum á bænum því að honum var annt að vitja um sauðamann sinn, en bjóst við þeim ófögnuði í staðinn fyrir jólagleði að finna hann dauðan í rúmi sínu eins og orðið hafði að undanförnu. Um leið og bóndi klæðist vaknar hitt heimilisfólkið og klæðist, en bóndi gengur að rúmi sauðamanns og hefur höndur á honum. Finnur hann þá að smalamaður er lífs; verður bóndi af því alls hugar feginn og lofar guð hástöfum fyrir þessa líkn. Síðan vaknar sauðamaður heill og hress og klæðist. Meðan á því stendur spyr bóndi hann hvort nokkur tíðindi hafi borið fyrir hann um nóttina. Sauðamaður kvað nei við, „en mikið undarlegan draum dreymdi mig.“ „Hvernig var draumur sá?“ segir bóndi. Sauðamaður byrjar þar á sögunni sem fyrr er sögð, er Hildur kom að rúmi hans og leggur við hann beizlið, og greinir síðan hvert orð og atvik er hann man framast. Þegar hann hefur lokið sögunni setur alla hljóða nema Hildi; hún segir: „Þú ert ósannindamaður að öllu því sem nú hefur þú sagt nema þú getir sannað með skýrum jarteiknum að svo hafi verið sem þú segir.“ Sauðamaður varð ekki endurrjóða við það og þrífur til hringsins er hann hafði náð um nóttina á hallargólfinu í álfheimum og segir: „Þó ég ætli mér óskylt að sanna draumsögu með jarteiknum þá vill svo vel til að ég hef hér eigi óljósan vott þess að ég hafi með álfum verið í nótt, eða er þetta ekki fingurgull yðar, Hildur drottning?“ Hildur mælti: „Svo er víst og hafðu allra manna heppnastur og sælastur leyst mig úr ánauð þeirri er tengdamóðir mín hefur á mig lagt, og hef ég orðið nauðug að vinna öll þau ódæmi er hún á mig lagði.“ Hefur þá Hildur drottning sögu sína svo látandi:

„Ég var álfamey af ótignum ættum, en sá sem nú er konungur yfir álfheimum varð ástfanginn í mér. Og þótt móður hans væri það allnauðugt gekk hann að eiga mig. Varð tengdamóðir mín þá svo æf að hún hézt við son sinn að hann skyldi skamma unaðsbót af mér hljóta, en þó skyldum við sjást mega endur og sinnum. En á mig lagði hún það að ég skyldi verða ambátt í mannheimum og fylgdu þar með þau ósköp að ég skyldi verða mannsbani hverja jólanótt á þann hátt að ég skyldi leggja beizli mitt við þá sofandi og ríða þeim sömu leið er ég reið sauðamanni þessum í nótt til að hitta konunginn; og skyldi þessu svo fram fara þangað til óhæfa þessi sannaðist á mig og ég yrði drepin nema ég hitti áður svo vaskan mann og hugaðan að hann bæri traust til að fylgja mér í álfheima og gæti eftir á sannað að hann hefði þangað komið og séð þar athæfi manna. Nú er það bert að allir hinir fyrri sauðamenn bónda síðan ég kom hér hafa bana beðið fyrir mínar sakir, og vænti ég að mér verði þó ekki gefin sök á því sem mér varð ósjálfrátt því enginn hefur fyrr til þess orðið að kanna hina neðri leið og forvitnast um híbýli álfa en þessi fullhugi sem nú hefur leyst mig úr ánauð minni og álögum, og skal ég að vísu launa honum það þó síðar verði. Nú skal hér og eigi lengri viðdvöl eiga og hafið þér góða þökk er mér hafið vel reynzt, en mig fýsir nú til heimkynna minna.“ Að því mæltu hvarf Hildur drottning og hefur hún aldrei síðan sézt í mannheimum.

En það er frá sauðamanni að segja að hann kvongaðist og reisti bú næsta vor eftir. Var það hvort tveggja að bóndi gjörði vel við hann er hann fór enda setti hann ekki saman af engu. Hann varð hinn nýtasti bóndi í héraðinu og sóttu menn hann jafnan að ráðum og liðsemd, en ástsæld hans og lán var svo mikið að mönnum þótti líkindum meiri og sem tvö höfuð væri á hverri skepnu, og kvaðst hann allan sinn uppgang eiga að þakka Hildi álfadrottningu.