Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Kímnisögur/Ósk Gríms Bessasonar
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
Ósk Gríms Bessasonar
Ósk Gríms Bessasonar
Grímur Bessason prestur[1] óskaði sér: „Ég vildi ég ætti mér svo stóra brennivínstunnu að himinn og jörð væri sponsinn í!“ „Hvar ætlaðir þú þá að vera?“ sagði annar. „Við sponsinn,“ sagði Grímur.
- ↑ Grímur Bessason (1719-1785) var prestur á Ofanleiti í Vestmannaeyjum (1745-48), í Ási í Fellum (1748-62), á Eiðum (1762-74) og síðan á Hjaltastað til dauðadags.