Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Kímnisögur/Aflausn
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
Aflausn
Aflausn
- Fyrst þú syndug sögð ert mér
- svo vil ég aflausn veita þér
- með svo miklum málavexti;
- minn svo hljóðar orðatexti:
- Sértu þar með syndalaus,
- set ég þér stórt högg í haus;
- farðu svo frá mér frí og frjáls
- sem folaldið skauzt úr meri Páls;
- rauður rjúpkeri ropi yfir þér
- og skíti í skegg þitt hvíta.