Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Kímnisögur/Fallega það fer svo nett
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
„Fallega það fer svo nett“
„Fallega það fer svo nett“
Einu sinni stóð kona nokkur úti á hlaði og sá hvar maður hennar var að smala í fjallshlíð, seint á vetri. Kom hún auga á að honum skrikaði fótur á hjarnskafli og hrapaði fram af klettum sem voru fyrir neðan. Urðu konunni þá þau ljóð af munni er síðan eru í minnum höfð:
- Fallega það fer svo nett,
- flughálkan er undir,
- hann er að hrapa klett af klett
- og kominn ofan á grundir.