Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Kímnisögur/Farðu í rass og rófu
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1864)
„Farðu í rass og rófu“
„Farðu í rass og rófu“
Sama hugsunin kemur enn oft fram í mæltu máli þegar menn skilja í styttingi og gefa þeim sem burtu fer vegabréf með þessum ummælum: „Farðu til fjandans og þaðan í verri stað;“ og enn eru slíkar bænir hafðar með ýmsu öðru móti, t. d.: „Farðu norður og niður,“ eða:
- „Far vel, Frans,
- og kom aldrei til Ísalands.“
Eða enn þannig:
- „Farðu í rass og rófu,
- ríddu grárri tófu,
- hafðu köttinn fyrir keyri,
- komdu aldrei að Eyri.“