Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Kímnisögur/Grafskrift
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
Grafskrift
Grafskrift
Pálína Ólafsdóttir – hún hafði lært af móður sinni grafskrift er maður gjörði að bæn konu sinnar norður í Eyjafirði eftir barn er þau áttu og dó. Móðir Pálínu var Vatnsenda-Rósa, og mundi hún vel eftir hjónum þessum:
- Gamli Bleikur barnið bar
- burt úr solli veraldar;
- honum ég það á hendur fel,
- himna él, kríustél.