Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Kímnisögur/Við skulum tátla hrosshárið

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
„Við skulum tátla hrosshárið“

Karl var að tæja hrosshár og sonur hans með honum. Þá sagði sonurinn: „Pápi minn, er það satt að Jesús Kristur hafi stigið niður til helvítis? „Ég veit ekki, drengur minn, segir karl, „svo segja prestarnir; við skulum ekki gefa um það; við skulum vera að tátla hrosshárið okkar.“