Brennu-Njáls saga
114. kafli

Snorri hét maður er kallaður var goði. Hann bjó að Helgafelli áður Guðrún Ósvífursdóttir keypti að honum landið, og bjó hún þar til elli en Snorri fór þá til Hvammsfjarðar og bjó í Sælingsdalstungu. Þorgrímur hét faðir Snorra og var son Þorsteins þorskabíts, Þórólfssonar Mostrarskeggs, Örnólfssonar fiskreka. En Ari hinn fróði segir hann vera son Þorgils reyðarsíðu. Þórólfur Mostrarskegg átti Ósku dóttur Þorsteins hins rauða. Móðir Þorgríms hét Þóra dóttir Óleifs feilans, Þorsteinssonar hins rauða, Óleifssonar hins hvíta, Ingjaldssonar Helgasonar, en móðir Ingjalds hét Þóra dóttir Sigurðar orms í auga, Ragnarssonar loðbrókar. En móðir Snorra goða var Þórdís Súrsdóttir, systir Gísla.

Snorri var vinur mikill Ásgríms Elliða-Grímssonar og ætlaði hann þar til liðveislu.

Snorri var vitrastur maður á Íslandi þeirra er eigi voru forspáir. Hann var góður vinum sínum en grimmur óvinum.

Í þenna tíma var þingreið mikil úr öllum landsfjórðungum og höfðu menn mörg mál til búin.