Grágás er lagasafn þjóðveldistímabilsins (930 – 1262/64). Lögin sem það inniheldur voru byggð á Gulaþingslögum frá Noregi. Lög þess féllu úr gildi með lögtöku Járnsíðu á árunum 1271 til 1274. Lagasafnið er varðveitt í nokkrum misheillegum handritum en AM 334 fol. (Staðarhólsbók) og GKS 1157 fol. (Konungsbók) eru þau ítarlegustu.
Kristinna laga þáttur, úr handritinu GKS 1157 fol. (Konungsbók). Gefin út í Kaupmannahöfn og Leipzig. Texti á latínu og fornnorrænu. Fullur titill: Jus ecclesiasticum vetus sive Thorlaco-Ketillianum constitutum an. chr. MCXXIII og á íslensku: Kristniréttur hinn gamli eða Þorláks-Ketils settur árið 1123.
Veraldlegur réttur Grágásar, úr handritunum AM 334 fol. (Staðarhólsbók) og GKS 1157 fol. (Konungsbók). Gefinn út í Kaupmannahöfn í tveimur bindum. Texti á latínu og fornnorrænu.
Stafrétt útgáfa af handritinu GKS 1157 fol. (Konungsbók). Gefinn út í Kaupmannahöfn í tveimur bindum. Texti á dönsku og fornnorrænu.
Staðarhólsbók, 1879
Stafrétt útgáfa af handritinu AM 334 fol. (Staðarhólsbók). Gefinn út í Kaupmannahöfn. Texti á dönsku og fornnorrænu.
Skálholtsbók, 1883
Stafrétt útgáfa af handritinu AM 351 fol. (Skálholtsbók) ásamt öðrum handritsbrotum Grágásar. Inniheldur einnig skýringar og atriðisorðaskrá fyrir verkin þrjú. Gefinn út í Kaupmannahöfn. Texti á dönsku og fornnorrænu.
Samsteypa gerð eftir útgáfu Vilhjálms Finsens. Texti færður til samræmdrar nútímastafsetningar. Önnur prentun 1997 og aftur 2001 með örfáum leiðréttingum. Fullur titill: Grágás: Lagasafn íslenska þjóðveldisins.