Hamarinn
Eftir Örn Arnarson
- Hamarinn í Hafnarfirði
- horfir yfír þéttabyggð,
- fólk að starfi, fley, sem plægja
- fjarðardjúpin, logni skyggð.
- Hamarinn á sína sögu,
- sem er skráð í klett og bjarg.
- Stóð hann af sér storm og skruggu,
- strauma hafs og jökulfarg.
- Hamarinn í Hafnarfirði
- horfði fyrr á kotin snauð,
- beygt af oki kóngs og kirkju,
- klæðlaust fólk, er skorti brauð,
- sá það vaxa að viljaþreki,
- von og þekking nýrri hresst,
- rétta bak og hefja höfuð,
- hætt að óttast kóng og prest.
- Hamarinn í Hafnarfirði
- horfir fram mót nýrri öld.
- Hann mun sjá, að framtíð færir
- fegra líf og betri völd.
- Þögult tákn um þroska lýðsins:
- Þar er hæð, sem fyrr var lægð,
- jökulhefluð hamrasteypa,
- hafi sorfin, stormi fægð."